Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1935, Qupperneq 24
«ANGUR TUNGL8 OG HÓLAH Á ÍSLANUI.
í þriðja dálki hvers mánaðar, sem hcflr yflrskriftina »T i h« (tnngl
i hásuðri), og i töblunni á blaðsiðu (17) er sýnt, hvað klukkan er
eftir íslenzkum meðaltima, I>egar tunglið og sólin eru í hásuðri
í Reykjavík. En vilji menn vita, hvað klukkan sé eftir íslenzkum
meðaltíma, þegar tunglið eða sólin eru i hásuðri á öðrum stöðum
á íslandi, þá verða menn að gera svo nefnda olengdarleiðréttingu*
á Reykjavikurtöiunni. Verður hún — 4 minútur fyrir hvert lengdar-
stig, sem staðurinn liggur austar en Reykjavík, og + 4 mín. fyrir
hvert lengdarstig, sem staðurinn liggur vestar en Reykjavík. T. d. er
Raufarhöfn um sex lengdarstigum austar en Reykjavík; lengdar-
leiðréttingin þar er þá — 24 min. og 5. júli er sól i hásuðri frá
Raufarhöfn þess vegna kl. 12 08. (12 32 — 0 24 = 12 08). Flatey á Breiða-
firði liggur einu lengdarstigi vestar en Reykjavik og lengdarleið-
ráttingin er þar 4 min. 1. febrúar er þvi tungl l hásuðri frá Flatey
kl. 10 36 f. m. (10 32 + 0 04 = 10 36).
Sólargangurinn i Reykjavik er tilgreindur i almanakinu hvern
miðvikudag. Sólargangurinn er talinn frá sóiaruppkomu (su.), þá er
miðja sólar sést koma upp fyrir Iáréttan sjóndeildarhring, og tll
sólarlags (sl.) þá er sólmiðjan sést fara niður fyrir sjóndeildarhring-
inn. Til þess að finna sólarganginn annarstaðar á landinu, þarf að
gera lengdarleiðréttingu á Reykjavikurtölunni á sama hátt sem við sól
eða tungl i hásuðri, en auk þess breiddarleiðréttingu.
Breiddarleiðréttingin fer eigi að elns eftir breiddarstigi staðarins,
heldur er hún einnig komin undir sólarganginum i Reykjavík. í
eftirfarandi töblu er sýnd breiddarleiðrétting fyrir hvert hálft stig,
norðar og sunnar en Reykjavík, þegar sólargangurinn i Rvík stendur
á heilli stundu. Leiðréttingiu er pósitif (+), þegar sólargangurinn
lenglst vegna hennar, en negatíf (—), þegar sólargangurinn styttist.
Breiddarleiðrétting töblunnar er þvi lögð við tíma sólarlagsins i Rvik,
en dregin frá sólaruppkomutimanum. Sé breiddarleiðréttingin negatif
(—), verður að taka forteiknið til greina.
Dæmi: Sólargangur 1. mai á Raufarhöfn, sem er 6 stigum austar
og 21/* stigi norðar en Rvik.
Penna dag er sólargangur i Reykjavik 16 st. 40 mín. Breiddar-
leiðrétting töblunnar fyrir 2 */> stig norður og sólargang 16 st. er + 16
min. en fyrir 17 st. + 23 mín. og fyrir 16 st. 40 min. verður breiddar-
leiðréttingin því + 21 min. Lengdarleiðréttingin er — 24 mín,
í Reykjavik . . . . su. 4 06 si. 8 46
Breiddarleiðrétting . — 21 +21
Lengdarlelðrétting . — 24_______— 24
ÁRaufarhöfn .... su. 3 21 sl. 8 43
Annað dæmi: Sólargangur 13. nóv. i Flatey á Breiðafirði, sem er
1 stigi vestar og l*/» stigi norðar en Rvik. Sóiargangur i Reykjavík
er 6 st. 43 min.
í Reykjavík ..... su. 8 50 sl. 3 33
Breiddarleiðrétting . +11 — 11
Lengdarleiðrétting , + 4_________+ 4
1 Flatey ...... su. 9 05 sl. 3 26
(22)