Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1935, Side 29
Grey lávarSur.
Sá maður, sem meira en nokkur einn maður annar
hafði örlög Evrópu í höndum sér i ágúst 1914, var
utanrikismálaráðherra Englendinga, Sir Edward Grey,
enda hefir síðar verið rætt og ritað margt um hann
og stjórnarstörf hans. ?ó að meðhaldsmenn hans
hafi lofað mjög stjórnvizku hans og heiðarleika, og
andstæðingar hans brugðið honum um þröngsýni og
röggsemdarskort, mun það mála sannast, að hann
var í þeim flokki manna, sem mest áhrif hafði á
millirikjamál heimsins um síðustu aldamót og fram
eftir þessari öld, þótt ekki hafi það verið á neins
eins manns valdi að ráða þeim atburðum, sem heims-
styrjöldin spratt úr, hvorki á valdi Grey’s né annara.
Grey lávarður var fæddur 25. apríl 1862 og fékk
skólamenntun sína í Winchester og seinna í Balliol
College í Oxford, og tók við eignum og titlum afa
sins þegar hann var tvitugur. Ætt hans átti jarð-
eignir á Norðymbralandi, um 2000 ekrur (Fallodon
Hall) og Grey hafði alla ævi miklar mætur á sveit-
inni sinni og á sveitalífi, svo að um hann hefir verið
sagt að hann hafi ávallt verið sveitamaður fyrst og
fremst, og sjónarmið hans á mönnum og málefnum
sjónarmið ensks sveitamanns eða stórbónda. Hann
hafði alla ævi mesta yndi af veiðiskap, einkum stanga-
veiði í laxám, og á yngri árum sinum var hann góður
og áhugasamur iþróttamaður, eins og títt er um enska
heldri menn, og helzt alla Englendinga, og gat sér
einkum afbragðsorð sem tennisleikari. Framan af ár-
um hafði hann miklu meira hug á sveitabúskap og
iþróttum en á stjórnmálum, en fór þó allsnemma
að láta þau til sín taka, því að þau eru, cf svo má
segja, ein af þeim iþróttum, sem góður og gildur
enskur heldri maður á að leggja stund á.
Grey var frá upphafi í frjálslynda flokknum og
(25)