Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1939, Qupperneq 2
Forstöðumenn þjóðvinafélagsins.
Forseti: Pálmi Hannesson, rektor.
Rilnefnd: Dr. Þorkell Jóhannesson, bókavörður.
Barði Guðmundsson, þjóðskjalavörður.
Dr. Guðm. Finnbogason, landsbókavörður.
Bogi Olafsson, yfirkennari.
Endurskoðunarmenn: Dr. Pórður Eyjólfsson, hæstaréttard.
Þórarinn Kristjánsson, hafnarstjóri.
Fyrir árstillagið, sem er aðeins 10 kr., fæst í ár And-
vari 63. ár, verð 3 kr., Almanak 65. ár, verð 2 kr., Stephan
G. Stephansson, Bréf og ritgerðir I., 1., verð 5 kr. og
örnefni í Vestmannaeyjum, eftir Þorkel Jóhannesson.
Eins og kunnugt er, er Þjóðvinafélagið eitt elzta menn-
ingarfélag hér á landi, stofnað árið 1871 að forgöngu Jóns
Sigurðssonar. Hefir það hin síðari árin verið langafkasta-
mesta bókaútgáfufélag landsins. Framan af árum var bóka-
útgáfa þess minni. Pó gaf það árlega út Andvara og Al-
manak, auk nokkurra annarra rita, stærri og smærri. Árið
1919 varð sú breyting á starfsemi þess, að það hóf að
gefa út bókatlokk, er nefnist Bókasafn Þjóðvinafélagsins,
alþýðleg fræðirit, eitt hefti á ári. 1929—1933 varð lilé á
þessari útgáfu, en í þess stað gaf félagið þá út hið mikla
ritverk dr. phil. Páls E. Ólasonar, Jón Sigurðsson, fimm
stór bindi alls. 1934 og 1935 hélt félagið svo áfram að gefa út
Bókasafnið. Gaf það annað árið út hið fræga rit belgiska
skáldspekingsins Maeterlinck um bý/higurnar, en hitt árið
Bakteríuveiðar, eftir ameriska lækninn Paul de Kruif, heims-
fræga bók og vafalaust bezta og skemmtilegasta fræðirit,
sem til er á vorri tungu. 1936 gaf það út hið mikla sögu-
verk Helga P. Briem um byltingu Jörundar hundadaga-
kóngs: Sjálfslœði íslands 1809. 1937 gaf það út merkilegt
rit um tónlist eftir próf. Erik Abrahamsen. Ank þess, sem
nú var talið, hefir félagið öll þessi ár gefið út Andvara og
Almanak. Andvari er nú 65 ára gamall. Hefir hann að
geyma fjölda stórmerkra ritgerða, en merkastur er hann
vegna þess, að hann hefir árlega flutt æfisögu einhvers ís-
lenzks merkismanns, og er þetta æfisagnasafn nú orðið al-
(Framh. á 3. lsápusíðu)