Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1939, Blaðsíða 103
(Framh. frá 2. kápusíðu)
veg einstakt í sinni röð. Almanakið heflr jafnan verið eitt
hið vinsælasta rit. Er þar furðumikinn fróðleik að finna,
en hér skal aðeins minnzt á Árbók íslands, yfirlit um
helztu viðburði innanlands. Er hvergi hægara áð flnna, hve-
nær ýmsir atburðir hafa skeð og frásagnir um þá en í ár-
bókinni, og er Almanakið þvi næsta ómissandi eign hverj-
um manni.
dtjórn félagsins er Ijóst, að með útgáfu skemmtilegra
og nytsamra bóka vinnur félagið þjóðnytjaverk. En til
þess að geta beitt sér öfluglega í starfl sínu þarf það að
njóta stuðnings sem flestra þeirra manna, er menntun
unna og bókavinir eru. Þess vegna hefir hún ákveðið, að
gefa þeim mönnum, sem af einliverjum ástæðum hafa
enn ekki gerzt meðlimir félagsins, sérstök kostakjör, ef
þeir ganga nú i félagið og styrkja það eftirleiðis.
Nýjum félagsmönnum er hér með geiinn kostur ó því
að eignast allar bækur, sem Þjóðvinafélagið hefir gefið
út 1919—1938. 20 árganga af Andvara og Almanaki, allt
sem út er komið af Bókasafni félagsins, 9 hindi alls,
Jón Sigurðsson, 5 bindi alls, og Sjálfstæði íslands 1809,
eftir Helga P. Briem, fyrir einar 75 kr., að viðbættu
félagsgjaldinu fyrir þetta ár, 1938, eða 85 kr. alls.
Þessar bækur eru alls um 750 arkir, og er þetta svo
einstakt tækifæri íyrir bókavini, að slíks munu fá dæmi
eða engin. Ef þér skylduð eiga eitthvað af þeim bókum,
sem hér ræðir um, og kærðuð yður því ekki um þær allar,
dregst andvirði þeirra frá þeirri upphæð, er nefnd var,
að réttri tiltölu og eftir samkomulagi.
Bækurnar verða sendar beint frá félaginu gegn fyrir-
framgreiðslu eða gegn póstkröfu.
Ef þér vilduð ennfremur eignast eitthvað af öðrum for-
lagsbókum félagsins, skuluð þér sæta um það hinum beztu
kjörúm.
Árgjald félagsins er 10 kr. En verðmæti ársbókánna
Ucfir hin siðari ár farið langt frám úr þeirri upphæð, og
heflr félaginu því að eins verið þetta kleift, að það hefir
notið litils háttar styrks frá Alþingi og trausts fjdgis margra
ágætr.a félagsmanna.
En með vaxandi fjölda fétagsmanna œtli það að vcra
betuf trgggt, að félagið géti haldið áfram að verd beztá
og mikilvirkasta bókaútgáfufélag landsins.
Stuðlið að þessu. Gangið í félag vort og notið gður
beztu bókakaupin.
Hið íslenzka þjóðvinafélag, pósthólf 313, Rvík.