Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Árgangur

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1939, Blaðsíða 95

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1939, Blaðsíða 95
Það ætti að vera óþarfi að kynna Stephan G. Stephansson fyrir islenzkum lesöndum. Það er kunn- ugt, að hann er eitt hið langbezta skáld, sem þjóð vor hefir alið. Kvæðasafn hans Andvökur, 6 bindi, um 120 arkir alls, er nú fullprentað.' Síðasta bind- ið kemur út í haust, og mun allt, sem eftir hann liggur í bundnu máli, prentað í því safni. Það munu nú vera nær 50 ár síðan að athygli íslenzkra lesenda var fyrst vakin á Ijóðum hans. Menn fundu brátt, að hér var maður á ferð, sem fór sinar eigin brautir og hirti ekki um, hvort hann hefði samfylgd margra eða alls engra. Hann var berorður og vægði ekki til fyrir neinum, manna víðsýnastur og hreinskilnastur. Yfirdrepsskapur, hræsni og loddaramennska i trú- málum, þjóðmálum og yfirleitt hvarvetna átti sér vísan brennandi fjandskap frá hans hálfu, alls staðar og æfinlega. Hann var bóndi, landnemi, vildi ekki vera neinum háður. Þrisvar reyndi hann alla örð- ugleika frumbýlisins, var alla æfi fátækur og sleit kröftum sínum og heilsu við lýjandi erfiðisverk bóndans, fjósageymslu og jarðyrkjustörf. Eigi að síð- ur vannst honum tími og andlegt þrek til þess að fylgjast manna bezt með andlegu lífi samtíðar sinn- ar og leysa af hendi svo mikið bókmenntastarf, að það eitt mætti sýnast ærið æfistarf. Sannleikur, rétt- læti og frelsi voru ltjörorð hans. Og hann var alltaf á verði, þar sem hann sá hugsjónum sinum mis- boðið. Og hann horfði aldrei i það, þótt óvænlega virtist horfa um vörn eða sókn. Harðsnúin trúar- félagssamtök, meiri hluti i stjórnmálum hér og er- lendis, brezk heimsdrottnunarstefna og stríðsæðið 1914—18 féklc að kenna á hárbeittri gagnrýni hans, svo beittri, svo brennandi, að stundum lá við sjálft, að hann sætti kærum fyrir „landráð“. Um skáldskap hans er það að segja, að þótt hann væri mikils met- inn í lifandi lífi, er ekki efi á því, að vegur hans muni þó verða því meiri er stundir liða fram. Hann. (89)
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags
https://timarit.is/publication/866

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.