Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1939, Blaðsíða 43
4. landsfundur bænda 17.—20. nóv. — Flokksþing
Framsfl. hófst í Rvk 12. febr. og lauk í byrjun Al-
þingis. 14. þing Alþýðusambands íslands stóð í Rvk
3%0—Vn, en 4. þing Kommúnistaflokks íslands um
miðjan nóv. — Verkamannafélag Siglufjarðar (kom-
múnistískt) gekk % inn í verkamannafél. Þrótt, sem
var í Alþýðusambandi íslands, og víðar var þvi for-
dæini fylgt. Dagsbrúnarfundur í Rvk skoraði á
Alþýðuflokkinn og Kommúnistaflokk íslands að sam-
einast. Samninganefndir frá báðum flokkum og Al-
þýðusambandsþingið unnu síðan að því, en tókst
ekki. — Lífsábyrgðarfélagið Thule hætti hér störf-
um á árinu, en Sjóvátryggingarfélag íslands tók við
tryggingum þess. — „KRON“, — Kaupfélag Reykja-
vikur og nágrennis —, var myndað %. Gengu þar í
eitt félag þessi fyrirtæki: Pöntunarfélag verkamanna
1 Reykjavík, Kaupfélag Reykjavíkur, Pöntunarfélagið
Hlíf í Hafnarfirði, Pöntunarfélag Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavikur og Pöntunarfélag Sandgerð-
is. Vöruvelta þessara félaga á árinu varð á 3. millj.
kr. og félagsmenn í KRON um 3400 i árslok.
Fjárhagur. Rikissjóðstekjur urðu 18 millj. kr. þar
af skattar og tollar 13.86 millj. og fóru 10% fram
úr áætlun, en tekjur af einkasölum og öðrum ríkis-
stofnunum urðu tiltölulega enn meira umfram áætl-
un. Ríkisgjöld á rekstrarreikningi fóru h. u. b. 15%%
fram úr áætlun, og er það meira en 1936, en svipað
og 1935. Rekstrarafgangur varð um 874 þús. kr. —
Skuldir rikissjóðs lækkuðu um 1 millj. kr. Föst lán
lækkuðu að vísu mun meir, en lausaskuldir uxu að
því skapi, mest við Landsbankann.
Útfluttar vörur urðu 58.8 millj. kr. eða liðugum
10 millj. hærri en árið áður. Mestu munaði á sildar-
afurðum (5 millj.), landbúnaðarafurðum (2% millj.),
liraðfrystum og herlum fiski (nam 96 þús. 1934, en
2 millj. nú). — Innfluttar vörur urðu 51,6 millj. kr.
eða 10 millj. hærri en 1936 (reyndust þá 41.6 millj.).
(39)