Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1939, Síða 24
GANGUR TUNGLS OG SÓLAR Á ÍSLANDI.
í þriöja dálki hvers mánaðar, sem hefir yfirskriftina »T. í h.« (tungl í
hásuöri), og í töblunni á blaðsíöu (17) er sýnt, hvaö klukkan er eftir íslenzk-
um miötíma, þegar tunglið og sólin eru í hásuöri í Reykjavík. En vilji
menn vita, hvað klukkan sé eftir íslenzkum miötíma, þegar tungliö eöa sólin
eru í hásuðri á öörum stööum á íslandi, þá veröa menn aö gera svo nefnda
»lengdarleiöréttingu« á Reykjavíkurtölunni. Verður hún — 4 mínútur fyrir
hvert lengdarstig, sem staðurinn liggur austar en Reykjavík, og -j- 4 mín.
fyrir hvert lengdarstig, sem staöurinn liggur vestar en Reykjavík. T. d. er
Raufarhöfn um sex lengdarstigum austar en Reykjavík; lengdarleiöréttingin
þar er þá — 24 mín., og 5. júlí er sól í hásuöri frá Raufarhöfn þess vegna
kl. 12 08. (12 32 — 0 24 = 12 08). Flatey á Breiöafirði liggur einu lengdarstigi
vestar en Reykjavík og lengdarleiðréttingin er þar 4 mín. 1. febrúar er því
tungl í hásuÖri frá Flatey kl. 10 23 e. m. (10 19 -f- 0 04 = 10 23).
Sólargangurinn í Reykjavík er tilgreindur í almanakinu hvern miövikudag.
Sólargangurinn er talinn frá sólaruppkomu (su.), þá er miðja sólar sést koma
upp fyrir láréttan sjóndeildarhring, og til sólarlags (sl.) þá er sólmiöjan sést
fara niður fyrir sjóndeildarhringinn. Til þess að finna sólarganginn annar-
staðar á landinu, þarf að gera lengdarleiðréttingu á Reykjavíkurtölunni á sama
hátt sem við sól eöa tungl í hásuöri, en auk þess breiddarleiðréttingu.
Breiddarleiöréttingin fer eigi aö eins eftir breiddarstigi staöarins, heldur
er hún einnig komin undir sólarganginum í Reykjavík. í eftirfarandi töblu er
sýnd breiddarleiörétting fyrir hvert hálft stig, norðar og sunnar en Reykjavík,
þegar sólargangurinn í Rvík stendur á heilli stundu. Leiöréttingin er pósitíf
(+)» þegar sólargangur lengist vegna hennar, en negatíf (—), þegar sólar-
gangurinn styttist. Breiddarleiðrétting töblunnar er því lögö viö tíma sólar-
lagsins í Rvík, en dregin frá sólaruppkomutímanum. Sé breiddarleiöréttingin
negatíf (—), veröur að taka forteiknið til greina.
Dæmi: Sólargangur 26. apríl á Raufarhöfn, sem er 6 stigum austar og 2>/2
stigi noröar en Rvík.
Penna dag er sólargangur í Reykjavík 16 st. 07 mín. Breiddarleiörétting
töblunnar fyrir 2V2 stig norður og sólargang 16 st. er + 16 mín., en fyrir
17 st. + 23 mín. og fyrir 16 st. 07 mín. verður breiddarleiðréttingin því +
17 mín. Lengdarleiðréttingin er — 24 mín.
í Reykjavík.................su. 4 23 sl. 8 30
Breiddarleiðrétting . . — 17 +17
Lengdarleiðrétting . . — 24__________— 24
Á Raufarhöfn...............su. 3 42 sl. 8 23
Annað dæmi: Sólargangur 8. nóv. í Flatey á Breiðafirði, sem er 1 stig
vestar og 1V4 stigi norðar en Rvík. Sólargangur í Reykjavík er 7 st. 14 mín
í Reykjavík.................su. 8 34 sl. 3 48
Breiddarleiðrétting . . +10 — 10
Lengdarleiðrétting . . + 4___________+ 4
í Flatey....................su. 8 48 sl. 3 42
(22)