Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1939, Qupperneq 29
Edmont Daladier.
Edmont Daladier forsætisráðherra Frakka er
fæddur árið 1884. Gekk hann í lærðan skóla í Lyon,
og lagði síðan stund á lögfræði. Gat hann sér brátt
mikið orð sem dugandi lögfræðingur. Hann var
fyrst kjörinn á þing, er hann var 35 ára gamall,
og kvað þá þegar allmjög að honum. Var hann þing-
maður fyrir social-radikala flokkinn. Hann varð
fyrst ráðherra 1924 — og siðan ávallt öðru livoru.
Hann er síðan 1927 foringi flokks sins, tók við
af hinum vinsæla Herriot, og sveigði það flokkinn
til nánari samvinnu við vinstri flokkana en tek-
izt hafði undir leiðsögu Herriots. Hann hafði um
skeið gegnt hermálaráðherra embættinu, áður en
hann varð forsætisráðherra nú síðast, og þykir ver-
ið hafa einn hinn duglegasti í því starfi síðan
Maginot leið, sá er liin mikla virkjalína á austur-
landmærum Frakklands er við kennd.
Daladier er alþýðumaður að ætt og uppruna. Fað-
ir hans var bakari í Vaucluse-héraði, hrjóstrugu og
fjöllóttu landi, þar sem sagt er, að fólkið skorti
nokkuð á þá ástúð, sem annars þykir einkenna
Frakka. En þeir Vauclusebúar geta unnað af heil-
um hug og hatað án undansláttar. Og Daladier
hefir báða þessa eiginleika. Hann ann karlmennsku
og dug, áræði og seiglu. Hann ann þvi, að menn
brjótist upp yfir erfiðar kringumstæður með dugn-
aði og elju. En hann hatar íburðar og iðjuleysis-
lif hástéttanna, tiginborna liðsforingja, sem náð hafa
stöðum sínum vegna ættar en ekki atgerfis, forrétt-
indi, sem erfðaauðæfi skapa. Hann vill, að Frakk-
land sé í bezta skilningi lýðræðisríki með opin
tækifæri handa öllum, sem duga vilja. Hann liefir
ekki minnstu löngun til þess að láta á sér bera.
Hann er fullkominn alþýðumaður í háttum sinunn
(25)