Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1939, Síða 40
30 aura á 1. vegna aukningar vinnslumjólkur, sem
þurfti að verðuppbæta. Annars staðar hélzt verð-
lag mjólkur árið út. Mjólkurlagabreyting, sem Al-
þingi samþykkti í árslok, tryggir bændum, með
verðjöfnun innan hvers sölusvæðis, öllum sama verð
fyrir mjólkina komna á aðalsölustað. Rangæingar
t. d. fá þá í Flóabúinu sama verð og Mjólkursam-
sala Reykjavíkur borgar, nema áætlaður flutnings-
kostnaður frá Flóabúi til Reykjavíkur er frádreginn.
Auknar samgöngur, hrun sauðfjárstofns og breytt
búskaparlag krefjast úrræða úr nýjum og nýjuin örð-
ugleikum.
Garðrækt og kornrækt færðust í aukana víða um
land. Kornrækt KEA i Eyjafirði heppnaðist vel.
Markaðsskáli fyrir grænmeti var reistur við Ing-
ólfsstræti í Reykjavík. íslendingar tóku þátt í garð-
yrkjusýningu í Kaupmannahöfn i septemberlok og
vöktu athygli.
Laxaklak og friðun á laxám óx. Merkasta nýja
klakstöðin á árinu var reist af ríkinu við Brúafossa
i Laxá, S.-Þing., jafnframt því sem áin var tekin
leigunámi og friðuð um 10 ára skeið.
Mæðiveikin breiddist óðfluga út. Reynt var með
girðingum að takmarka hana milli Hvalfjarðar og
Blöndu og verja Vestfirði ásamt miklu af Dalasýslu.
En þá kom veikin upp á strjálingi í Árness-, Kjósar-,
Stranda- og Skagafjarðarsýslu. Ríki og héruð vörðu
740 þús. kr. á árinu til að stöðva veikina. Meðal
þeirra, sem unnu að rannsóknum á henni, má nefna
E. L. Taylor, enskan sérfræðing, sem var hér lengi
sumars. Læknisráð fundust ekki. — Bændur á Hegg-
staðanesi í Húnavs. afgirtu nesið, eyddu öllu fé
sínu og keyptu bústofn, 540 fjár, í Norður-Þings.
Byggingar. í Reykjavík var lokið nýjum verka-
mannabústöðum (72 íbúðir, vigðar %), og byggt
fyrir 5750 þús. kr. eða 1 millj. meira en 1936. Verð-
hækkun dró úr nýbyggingum. Á Akureyri t. d. var þó
(36)