Almanak Hins íslenska þjóðvinafélags - 01.01.1939, Page 80
íöldíust ekki nema 44 þúsund árið 1930 og 22 þús.
árið 1925.
Af loðdýrum þeim, sem talin voru 1936, voru 1005
silfurrefir, 434 íslenzkir refir, 213 merðir (minkar),
10 þvottaLirnir og 162 kanínur, en ótilgreind
tegund 9.
Hundar eru ekki taldir í búnaðarskýrslum, en af
hundaskattinum má fara nærri um tölu þeirra. Hann
var lagður á árið 1890 til þess að draga úr því, að
hundar yrðu haldnir umfram þarfir. Var hann 2 kr.
af hverjum búhundi, en 10 kr. af öðrum hundum,
en hærri skatturinn er aðeins greiddur fyrir örfáa
hunda. Skömmu fyrir 1870 var gizkað á, að tala
hunda á landinu væri rúml. 20 þúsund, en eftir að
hundaskatturinn komst á mun þeim hafa fækkað
mjög mikið. Efíir skattinum hefir talan þegar 1893
verið komin niður í 8 þúsund og siðan um aldamót
hefir hún oftast verið um 7 þúsund.
Taflan á bls. 75 sýnir tölu kvikfénaðar í hverri
sýslu á landinu árið 1936.
(74)