Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1933, Blaðsíða 72
70
irfarandi tillögur, sem nefndin haföi samið og sam-
þykkt:
1. Nefndin leggur til, að Ársritið haldi áfram að
koma út með svipuðu fyrirkomulagi.
2. Að upplagið skuli fært niður úr 1000 eintökum
í 600.
3. Að þeir sem ekki hafa greitt tillag sitt í 3 ár,
skuli strykaðir út af félagsskrá.
4. Aö afgreiðslumanni sé falið að útvega umboðs-
menn til að útbýta ársritinu og innheimta tillög, þar
sem því verður við komið og hagur þykir að.
5. Nefndin leggur til að athugað sé, hvort ekki muni
rétt að skólinn kosti útsendingu eldri árganga ársrits-
ins til lestrarfélaga úti um land og þeim gefinn kostur
á að gerast kaupendur að því«.
Arnór Sigurjónsson ræddi um útgáfu Ársritsins
framvegis. Taldi um tvær leiðir að gera í því máli:
annaðhvort að halda því í svipuðum stíl og verið hei’ir
og gera þá ráð fyrir, að það verði aðallega fyrir þá,
sem í Nemendasambandinu eru og verða, en lítilsvert
fyrir aðra. Hin leiðin að gera það meira fyrir almenn-
ing, — ætla fyrst og fremst félagsmönnum sambands-
ins þeim, sem lokið hafa námi við skólann að sjá um
efni í það, og velja til ritstjóra einhvern úr þeirra
hópi, einhvern, sem vilja og áhuga hefði til að starfa
að þessu máli. Taldi hann hallærisráðstöfun að fækka
eintökum að Ársritinu ef til vill réttmæta, en þó hættu-
lega. Fleiri tóku til máls. Skiftar skoðanir um, hvort
heppilegt myndi eða ekki að hafa sama ritstjóra árum
saman. Páll H. Jónsson benti á, að lögum samkvæmt
yrði varla á þessum fundi breytt til um útgáfu Árs-
ritsins, þannig að fjölgað yrði heftum þess á yfir-
standandi ári. Bent var á, að heppilegast myndi að
fresta afgreiðslu málsins til næsta dags, svo að fur.d-