Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1933, Page 75
73
atkvæðum. — Jón Kr. Kristjánsson beindi þeirri ósk
til fundarmanna, að sem flestii- Laugamenn keppi um
að gera tillögu og uppdrátt að merki fyrir Lauga-
skóla og sendi til stjórnarinnar. Málið síðan tekið út
af dagskrá.
II. Næsío. nemendamót. Flutningsmaður, Þorgeir
Jakobsson. Lagði hann til, fyrir hönd nýkosinnar
stjórnar, að næsta mót N. S. L. yrði haldið eftir tvö
ár. Eftir lítilsháttar umræður með og móti var tillaga
stjórnarinnar samþykkt með miklum meirihluta.
III. Ársritið. Fundarstjóri minntist á tillögu nefnd-
ar þeirrar sem starfað hafði í málinu og eins tillögu
J. Kr. Kr. Síðastnefnd tillaga var tekin aftur og eins
vísaði nefndin nú tillögum sínum beint til stjórnar-
innar, samkvæmt tillögu, sem fram kom á þessuih
fundi svohljóðandi: »Fundurinn ákveður að halda
skuli áfram útgáfu Ársritsins og felur stjórninni
framkvæmd þess eins og hentast þykir«. Málið nokli-
uð rætt og tillagan síðan borin upp og samþykkt með
þorra atkv. gegn 1.
IV. Fjárhagsmál. Framsögumaður — fyrir hönd
fyrrverandi stjórnar — Páll H. Jónsson, gerði grein
fyrir fjármálum sambandsins og urðu um það nokkr-
ar umræður.
V. Kosning nefndar til undirbúnings stofnun lands-
sambands alþýðuskólanemenda. Fundarstjóri stakk
upp á, að Arnór Sigurjónsson nefndi menn til þeirra
starfa meö fundarsamþykki, en Þóroddur Guðmur.ds-
son kom fram með munnlega breytingartillögu við
nefndarálitið frá deginum fyrir, á þá leið, að málið
yrði falið stjórninni til framkvæmda. Var það sam-
þykkt með 16:11 atkv.