Ársrit Nemendasambands Laugaskóla - 01.01.1933, Side 87
A tímamótum
Ekki veit eg, hvort menn hafa enn gert sér grein
fyrir þeim merkilegu tíðindum, að nú eru þeir orðnir
fulltíða menn, sem voru óvita börn, þegar ófriðurinn
mikli skall á. Þegar þeir gerðu sér fyrst grein fyrir
lífinu, var það í skugga þess mikla óveðurs, og þegar
þeir fóru að hugsa sjálfstætt um lífið, var það við
rústirnar eftir það.
Eg veit það heldur ekki. hvort menn hafa gert sér
það ljóst, að þeir sem náð höfðu fullum þroska fyrir
ófriðinn mikla, eru nú orðnir gamlir að árum og þó
flestir ennþá eldri í raun og veru. Þ\n' að viðhorfið
allt gagnvart lífinu hefur breytzt með svo skjótum
hætti, að undrum sætir, og á fárra færi, er markað
höfðu sér afstöðu, að fylgja svo skjótum breytingum
eftir.
Þetta veldur því, að tímahvörf og kynslóðaskifti eru
nú svo glögg, að jafnglögg hafa þau aldrei verið fyrr
í sögu mannkynsins. Aldrei hefur nokkur styrjöld eða
nokkur annar viðburður gripið jafn átakanlega og
með jafn skjótum hætti inn í líf sérhvers manns um
alla jörð sem ófriðurinn mikli. Því veldur það hvort-
tveggja, að aldrei hefur jafnmikill hluti alls mann-
kyns tekið þátt í einurn ófriði og það, hvað samgöng-
ur eru nú greiðar orðnar og öll áhrif fljót að berast.