Freyr - 01.12.1948, Side 17
FRE YR
355
fyrra,“ segir Aage, og það er auðheyrt á
honum, að hann horfir með ánægju yfir
akra sína með von um að allt bjargist vel
í garð.
Heima hjá húsmóðurinni.
Við göngum heim og lítum á húsakynni
þau, sem húsmóðirin hefir til ráðstöfunar.
Það skal nú annars sagt strax, að frú Anna
gætir ekki aðeins húss og barna, heldur
hjálpar hún manni sínum einnig við bú-
störfin ,og það svo um munar, enda hlýtur
það að vera, því að bóndi sá, er seldi hon-
um jörðina, var vanur því að hafa vinnu-
mann og vinnukonu til aðstoðar við bú-
skapinn, en Aage og Anna hafa aðeins
einn piltung, „sem á erfitt með að vakna
á morgnana."
íbúðarhúsið er vegleg bygging, 15 metra
löng og 8 m breið, með risháu lofti og
kvist gegn suðri. í litlum kjallara undir
austanverðu húsinu er matvælageymsla,
en á neðri hæð eru tvær stofur, svefnher-
bergi, stórt eldhús og svo búr, og forstofa.
Húsið er hitað með miðstöð frá eldavél.
Á lofthæðinni eru 3 herbergi innréttuð,
Húsaskipan á Órgaard er eins og algengast er á dönslcum sveitabýlum. Til hœgri við jánastúngina er íbúðar-
húsið og á bak við það blóma- og matjurtagarður, umluktur skjólgirðingu trjáa og runna. Fremst á mynd-
inni er jjósið, en homrétt á það stœrsta byggingin, hlaðan. og í ájram haldi af henni er hænsnahúsið —
með skúrþaki. Hinu megin við grasjlötinn er verkjœraskemma, með stráþaki, en jrá gajli hennar (til hœgri)
sést heimreiðin eins og hvítt strik út yjir akurinn til þjóðvegarins, sem liggur um 50 m jrá bœnum. A akri,
hoegra megin við heimreiðina eru kornhreyki. I homi myndarinnar hjónin, Anna og Aage. — Ljósm.: G. K.