Freyr - 01.12.1948, Qupperneq 34
372
FREYR
í Líizern gistum við síðustu nóttina í
Sviss. Um kvöldið göngum við um og
skoðum þessa undurfögru borg. Margt er
þar að sjá í búðargluggum, en lengst
horfi ég þó á úr ýmissa tegunda og klukk-
urnar og svo á kúna. Þarna stendur hún
í glugganum og horfir á mig. Smávaxin
er hún að vísu, en vel hyrnd og hvasseyg,
og bjallan er um hálsinn eins og á öllum
svissneskum kúm.
En um morguninn kaupi ég hana, hún
hverfur úr búðinni. Hún fer í tösku mína.
Ef þú heimsækir mig, skal ég fúslega sýna
þér hana. Það er mér og henni til láns,
að Svisslendingar vakna snemma. Ég þarf
að víxla sænskum peningum í bankanum
og fá svissneska fyrir, en lestin fer kl. 9
og alllangt er á járnbrautarstöðina.
Hún kostaði mig andvirði þriggja til
fjögra hótelmáltíða, en þær hefi ég
sparað síðustu þrjá dagana, því að á þeim
tíma keypti ég aðeins eina máltíð, en lifði
á appelsínum og vínberjum ásamt nestinu
frá Danmörk.
Sæmir það ekki vel góðum búmanni að
spara við sig matinn, en kaupa í þess stað
kú í búið?
Norðurlandalestin rennur út frá járn-
brautarstöðinni í Luzern. Nú er haldið
heim á leið. Merkasta ævintýri ævi minn-
ar er að enda.
Ég fer frá Sviss mikið auðugri en ég kom
þangað, auðugur að unaðslegum minning-
um og með bjöllukú í töskunni.
Brautin upp á Pílatus er höggvin í bergið. Það
er betra að tannhjólin ekki bili, það gerðu þau
heldur ekki, og þama stöndum við og njótum út-
sýnis uppi á Pilatusi