Freyr

Årgang

Freyr - 01.12.1948, Side 18

Freyr - 01.12.1948, Side 18
356 FRE YR Veter og Hans, úti á akri með annað hrossanna á Orgaard. I baksýn er bœrinn og trjágróð- urinn umhverfis matjurtagarð- inn. Ljósm.: G. K. og svo er þar feikna mikill geimur sem geymslurúm. Sums staðar hefði húsrýmið þótt nóg handa 10 manns, hér er það not- að af fjórum, það er að segja, að loftið er ekki notað, því að vinnumaðurinn sefur í herbergi, sem innréttað er við verkfæra- geymslu og börnin eru svo lítil, að þau sofa enn í svefnhýsi foreldranna, en loft- herbergin verða drengjanna, er þeir vaxa að árum og atgjörvi. Er ég hefi orð á því við Önnu, að það þurfi nokkurn tíma til þess að hirða þetta stóra hús, svo vel sem raun er á, — því að hvergi er blett eða hrukku að sjá á vel máluðum veggjum né lofti, og hið sama er að segja um hin gljáfægðu harðviðar- gólf, — þá segir hún, að það sé nú bara brot af daglegu störfunum. Á fœtur klukkan fimm. „Við förum á fætur klukkan fimm á hverjum morgni, hvort sem dagar eru virkir eða helgir, og háttatími er jafnan um ellefuleytið á kvöldin, svo svefntím- inn getur aldrei orðið meira en 6 klukku- stundir, og oft minna en það,“ segir Anna, þegar við ræðum nánar um ráðstöfun hinna einstöku hluta dagsins. „Fyrst er nú að mjólka kýrnar og svo að kæla mjólkina og láta hana í flöskurnar. Við vinnum að þessu í félagi, það eru 19 kýr að mjólka þegar engin er geld, og málnyta er að með- altali meira en 100 lítrar, eða með öðrum orðum yfir 100 flöskur. Þessu verki er ekki lokið fyrr en klukkan er farin að ganga 8. Svo taka búverkin við, matargerð, hrein- gerning, þvottar og svo að senda Hans í skóla, og annað, eins og gengur, þangað til mjalta skal aftur kl. 5 að kvöldi. Fyrir þann tíma þarf að vera búið að þvo allar flöskur dagsins, meira en 200 að tölu. Jú, það er nóg að gera, og svo öll vinnan úti á ökrunum, þar verður Aage að vera með annan fótinn, því að pilturinn er lítt vanur verkum og kann þau varla án eftirlits og leiðbeininga." Það er ekki létt að vera húsmóðir, sem sinna þarf störfum innan húss, hirða og gæta barna, fara í fjós og þræla úti á ökr- um. Þetta hafa ýmsar húsmæður gert, en því er verr, að stundum bilar þrekið fyrr en skyldi vegna ofþjökunar. En það er því-

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.