Freyr

Volume

Freyr - 01.12.1948, Page 22

Freyr - 01.12.1948, Page 22
360 FREYR Fyrsta samvinnu- mjólkurbú heims- ins í Hjedding í Danmörku. Þar hófst starfsemi árið 1882. gegnum loftið yfir þreskihlöðu og þar héngu föturnar á þverslá á efri enda öx- ulsins. Maður þessi var skáld. Grönnunum þótti tiltæki hans skáldlegt og streymdu að til þess að sjá nývirkið. En skyndilega heyrðist hvinur, sem hvasst er veður yfir dynur, eins og segir í sálminum, og fólk sá mjólkurfötur á fljúgandi ferð í gegnum þakið og langt út á akur. Þetta varð end- irinn á tilraunum með slíka gerð skilvindu. Prófessor M. V. StorcJc gat þess á prenti nokkru síðar, að skilvindan ætti eflaust að vera sívöl, og því ráði var fylgt þegar fyrsta nothæfa skilvindan var framleidd í Roskilde fáum árum síðar. ★ Þó að ekki séu nema um 70 ár síðan þessir atburðir gerðust, hefir margt breyzt í þessum efnum. Stórstígar framfarir á sviði mjólkuriðnaðarins hafa átt sér stað. Saga þeirra framfara skal ekki sögð hér, en þess er vert að geta, að árið 1882 var fyrsta samvinnumjólkurbú heimsins sett á stofn í Hjeddiiig, við Ribe í Danmörku. Byggingar hafa breytzt og mjólkurbú einn- ig, en ennþá stendur bygging sú, sem hýsti þessa frumspíru samvinnustarfs á framleiðslusviði bændanna. Á stríðsárum keypti Landssamband mjólkurfélaganna dönsku bygginguna, í því skyni að varðveita staðinn og minningu upphafs félagsstarfseminnar. Og nú hefir verið gerð ráðstöfun til þess, að komandi kynslóðir geti séð með eiginn augum hvernig starfsskilyrði og fyrirkomulag var á þessu fyrsta mjólkurbúi, — þessu fyrir- tæki bændanna, upphafi þeirrar megin- stoðar danskra bænda og danskrar þjóð- ar, sem mjólkurbúin eru í dag. Nú hefir verið hresst upp á gömlu bygg- inguna og hún færð í gamla búninginn. Vélum og áhöldum, sem þarna voru notuð, hefir verið safnað saman, og fengið að, það sem vantaði til þess að gera samstæðuna

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.