Freyr

Árgangur

Freyr - 01.12.1948, Blaðsíða 39

Freyr - 01.12.1948, Blaðsíða 39
FRE YR 377 AXEL BRÆMER: Jólakaktus Emmu frænku Það var rúmur mánuður til jólanna. Við Óli komum heim úr skólanum og uppgötv- uðum, að í gluggann í herberginu okkar hafði verið settur jurtapottur með hálf- visinni, kræklóttri og ljótri jurt. Hvað á nú þetta að gera hér? sagði Óli gramur. Hver hefir draslað þessum vanskapningi inn til okkar? Þetta er jólakaktusinn hennar Emmu frænku, sagði mamma, er kom að rétt í því, frænka er á ferðalagi og kemur ekki heim fyrr en um jól. Við geymum hann á meðan og hann á að standa hérna í glugganum hjá ykkur. Oj! sagði Óli, eigum við að glápa á þetta afskræmi til jóla? Það er nú lítil ánægja í því. Fallegur er hann nú ekki, sagði mamma, en þetta er víst uppáhaldsplanta frænku. Hún er búin að eiga hana í fjögur ár og hefir alltar borið umhyggju fyrir kaktusn- um, en ennþá hefir henni ekki tekizt að fá hann til að blómstra. Það er bezt að fleygja honum, hann er visinn, sagði Óli. Nei, það gerið þið ekki, sagði mamma, ég lofaði Emmu frænku, að þið skylduð passa hann og ég veit að þið gerið það. Nei! æptum við báðir í einu. En frænka sagði, að ef þið fengjuð hann til þess að blómstra fyrir jól, þá skylduð þið fá góða jólagjöf. Húrra! Það var nú allt annað, sagði Óli. Nú litum við kaktusinn hýru auga. Emma frænka var nú annars ekki vön að gefa jólagjafir. Hún fær orð fyrir að halda um sitt og kannske að verðskulduðu. En ef að umhyggja fyrir jólakaktusinum gæti orðið til þess að breyta háttum hennar, þá væri það tilvinnandi. Við skulum svei mér láta hann blómstra, sagði bróðir minn, og um það vorum við á einu máli. Og nú var tekið til óspilltra málanna. Fyrst fórum við í bókasafnið, fengum 5 eða 6 bækur um kaktusa og lásum allt sem í þeim stóð um Epiphylum truncatum, sem er latneska nafnið á jólakaktusi. Og það var enginn smáræðis vísdómur, sem við feng- um þar. Þar stóð hvernig skuli vökva og umpotta, þar mátti lesa um áburð og sprotaskurð, og margt annað. Aldrei hafði okkur til hugar komið, að ræktun vesallar jurtar í potti gæti verið svo flókin. En nú var ákveðið að öllum brögðum skyldi beitt til að gæta þessa uppáhalds Emmu frænku. Og það gerðum við. Við úðuðum, og við teðjuðum, við snerum pottinum, við klippt- um kaktusinn og beittum öllum okkar lif- andi ráðum. En kaktusinn lét sér ekki segjast. Útlit hans fór hríðversnandi. Á honum mynduðust blómsturhnappar en þeir duttu af jafnharðan, og við vorum bæði sárir og gramir. Og rétt fyrir jólin uppgáfumst við. Nú vil ég ekki sjá þennan pip-trunk framar, sagði Óli með beizkju í röddinni, hann tekur alla jólagleði frá okkur. Ég fleygi honum. Við vorum á eitt sáttir í því máli, tókum pottinn með kaktusnum, bárum hann nið- ur í miðstöð og settum hann þar á eldivið-

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.