Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2005, Side 35

Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2005, Side 35
 GERÐU ÞÉR MAT UR BLOMKALI BLÓMKÁLSGRATÍN MEÐ GRAÐOSTASÓSU um 800 g íslenskt blómkál salt 250 ml matreiðslurjómi eða rjómi 100 g gráðaostur 75 g rjómaostur 1/4 tsk timjan, þurrkað nýmalaður pipar 2egg nokkrir valhnetukjarnar smjör til að smyrja formið Ofninn hitaður í 200°C. Blómkálið snyrt, skipt í kvisti og soðið í saltvatni í 3-4 mínútur. Hellt í sigti og látið renna vel af því. Rjóminn hitaður í potti, muldum gráðaosti og rjómaosti hrært saman við og hrært þar til osturinn er bráðinn. Kryddað með timjani, pipar og salti. Eggin þeytt létt í skál, heitri gráðaostassósunni hrært saman við í mjórri bunu og hrært rösklega á meðan. Blómkálinu dreift í vel smurt form, valhneturnar muldar yfir og síðan er sósunni hellt jafnt yfir allt saman. Sett í ofninn og bakað í 15-20 mínútur, eða þar til fyllingin hefur stífnað og tekið góðan lit. www.islenskt.is - fleiri Ijúffengar uppskriftir og fródleikur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.