Dagblaðið Vísir - DV - 13.08.2005, Page 35
GERÐU ÞÉR MAT UR BLOMKALI
BLÓMKÁLSGRATÍN MEÐ GRAÐOSTASÓSU
um 800 g íslenskt blómkál
salt
250 ml matreiðslurjómi eða rjómi
100 g gráðaostur
75 g rjómaostur
1/4 tsk timjan, þurrkað
nýmalaður pipar
2egg
nokkrir valhnetukjarnar
smjör til að smyrja formið
Ofninn hitaður í 200°C. Blómkálið snyrt, skipt í kvisti og soðið í saltvatni
í 3-4 mínútur. Hellt í sigti og látið renna vel af því. Rjóminn hitaður í potti,
muldum gráðaosti og rjómaosti hrært saman við og hrært þar til osturinn er
bráðinn. Kryddað með timjani, pipar og salti. Eggin þeytt létt í skál, heitri
gráðaostassósunni hrært saman við í mjórri bunu og hrært rösklega á meðan.
Blómkálinu dreift í vel smurt form, valhneturnar muldar yfir og síðan er
sósunni hellt jafnt yfir allt saman. Sett í ofninn og bakað í 15-20 mínútur, eða
þar til fyllingin hefur stífnað og tekið góðan lit.
www.islenskt.is - fleiri Ijúffengar uppskriftir og fródleikur