Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2006, Qupperneq 38

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2006, Qupperneq 38
54 FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ2006 Helgin 33V „Báðar systur mínar og kærastinn minn eru grænmetisætur svo þetta er ekkert vesen og að mínu mati er enginn maður með mönn- um nema s/eppjo hveiti og sykri." •Víl'-'X Helga Braga „Ég á þrjá troðfulla skápa og eina geymslu afnýlegum fötum og næ alls ekki að fara I þetta allt,“segir hún. ■ :':vani WMM Megrunarkúrar virka ekki Leikkonan Helga Braga Jónsdóttir gerðist grænmetisæta fyrir nokkrum árum. Hún léttist strax um tíu kíló og heldur áfram að léttast. Helga segir megrunarkúra ekki virka því þá fái líkaminn misvísandi skilaboð og ríghaldi í hverja einustu kaloríu sem honum berst. „Ég er alvörugrænmetisæta og borða hvorki fisk eða kjöt né sykur og hvítt hveiti," segir Helga Braga Jóns- dóttir leikkona. Helga lifir því á græn- meti, baunum, speltpasta og ávöxtum og hefur gert síðustu árin. „Ég borða allt þetta góða,“ segir hún brosandi og bætir við að henni líði mun betur. „Þetta kom bara til mín en ég vissi að sykur myndi veikja mig og ég er viss um að ef sykur væri uppgötvaður í dag þá væri hann bannaður. Hann er svo örvandi og hræðilegur," segir Helga sem drekkur ekki áfengi þar sem það inniheldur mikinn sykur. Megrunarkúrar virka ekki Aðspurð segh Helga þennan UfsstQ ekki vera mikið vandamál. Margir í kringum hana séu einnig græn- metisætur sem auðveldi ýmislegt. „Báðar systur mlnar og kærastinn minn eru grænmetisætur svo þetta er ekkert vesen og að mínu mati er eng- inn maður með mönnum nema sleppa hveiti og sykri,“ segir Helga létt í bragði. „Það er miklu meira vesen að bólgna út eins og rjómabolla en að borða rétt,“ segir hún en Helga missti strax tíu kíló þegar hún breytti mata- ræðinu. „Þetta gerðist mjög auðveld- lega, það var ekkert eins og ég væri í megmn enda veit ég að megrunarkúr- ar virka ekki á mig. Þá fyrst byijar fíkn- in. Líkaminn fær misvísandi skilaboð og heldur að það sé hungursneyð og rígheldur því í hverja einustu kaloríu." Kínakál með kokteilsósu Helga segist passa upp á að hún fái öll nauðsynleg næringarefni úr fæð- unni og fæðubótarefhum. „Það þýðir ekkert að ætla að lifa á speltpasta alla daga og því passa ég mig að fá prótein og fæ ómega-fitusýmmar úr hörfræ- hylkjum." Helga borðar þó mjólkur- vömr og býst við að halda því áfram. Þegar talið berst að veitingahúsum borgarinnar segh Helga mikfa breyt- ingu þar á síðan hún gerðist græn- metisæta. „Ég fer mikið á Maður lif- andi, Á næstu grösum og þessa staði. Úrvalið er orðið mikið og það er allt annað að vera grænmetisæta í dag en hér áður fýrr. Einu sinni var ég til dæmis í tökum þar sem við fengum bakkamat frá fýrirtæki og þar sem ég var grænmetisæta fékk ég kínakál með kokteilsósu. Viðbjóður! Þá var ekkert hugmyndaflug en í dag er þetta í mjög góðum málum." Ætlar að selja fötin sín Helga er á fullu að leika í Viltu finna milljón í Borgarleikhúsinu. Auk þess stefnir hún á að leigja bás á fata- markaðnum hennar Elmu Lísu til að selja eitthvað af fötunum sfnum. „Ég er búin að leggja af og þarf að losa mig við föt. Ég á þijá troðfulla skápa og eina geymslu af nýlegum fötum og næ alls ekld að fara í þetta allt,“ segh Helga Braga hress og kát að vanda að lokum. indiana@dv.is 10 sniðug húsráð # Salat og grænmeti helst lengur ferskt ef þú vefur það inn í dagblöð. ® Ef þú átt ekki rjóma til að bæta í sósuna geturðu blandað saman mjólk og smjöri og notað í staðinn. # Settu olíu á barma pottsins þegar þú sýður mjólk svo hún sjóði síður upp úr. # Stingdu gat á eggið með nál svo skurnin brotni síður við suðuna. ® Geymdu soðin egg í köldu vatni í fimm mínútur og þá verður mun auðveldara að ná af skuminni. # Skerðu soðin egg með heitum hníf svo þau fari ekki í klessu. ® Soðin egg geymast betur í köldu vatni inni í ísskáp. % Haltu brauðhnífnum nálægt kertaljósi ef brauðið er of mjúkt til að skera niður. % Settu möndlur í heitt vatn áður en þú afhýðir þær. ® Settu örlítið salt út í vatnið þegar þú sýður spínat til að halda græna litnum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.