Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2006, Síða 41
DV Helgin
FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ2006 57
Á tali med Hemma Gunn
Hemmi þotti fara Ótroðnarslóðir
ipætti sinum Á rati með Hemma
Gunn, ekkisistafþvihann var
svo opinn og einleegur.
Nú þegar Það var lagið hefur runnið sitt
skeið á enda, í bili að minnsta kosti, er
Hemmi Gunn enn og aftur kominn á
kreik og nú með nýjan þátt sein verður
sýndur á Stöð 2 í vetur. Vinnuheiti þátt-
arins er Hemmi í sjöunda himni. en það
verður þó örugglega ekki nafn þáttarins,
sem á að vera afar „professional“ og
höfða til breiðs hóps áhorfenda.
Sýningum á Það var lagið lýkur
nú í júlí en þá hafa verið sýndir 68
þættir í allt. Þrátt fyrir að Hemmi
hafi ekki verið sérstaklega spennt-
ur fyrir hugmyndinni um Það var
lagið þegar hún var kynnt fýrir
honum hefur hann notið hverrar
mínútu og er mjög sáttur. Honum
finnst þó tími til kominn að hvíla
þættina og búa til eitthvað nýtt og
spennandi.
„Ég er mjög sáttur við það sem
ég er að gera í dag en ég hef verið
að vinna ýmislegt fyrir 365," seg-
ir Hemmi. „'Fyrir utan Það var lag-
ið mæti ég reglulega í spjall hjá
Guðna Bergs í meistaradeildinni í
fótbolta og er alltaf í íslandi í bítið á
föstudögum. Svo er ég með þáttinn
Enn á tali á Bylgjunni á sunnudög-
um, en sá þáttur hefur fengið mjög
góða hlustun. Ég hef fengið til mín
hljómsveitir í stúdíó og það hefur
oft verið glatt á hjalla. Ég lít á þenn-
an þátt sem litla bamið mitt sem
mér þykir afar vænt um. Nú þegar
ég breyti til mun ég sjá mjög eftir
þessu örverpi mínu."
Engir kóngar eða stjörnur
Hemmi hefur sumsé tekið til-
boði 365 um að gera nýjan sjón-
varpsþátt sem verður sýndur um
helgar og á helst að geta höfðað til
allrar fjölskyldunnar. Hann segist
að sjálfsögðu vera með ótal hug-
myndir en ánægðastur er hann
með að fá Maríönnu Friðjóns-
dóttur sem pródúsent. Maríanna
stjórnaði upptökum á Það var lag-
ið en undanfarið hefur hún verið í
Danmörku.
„Við Maríanna smellum saman
eins og flís við rass," segir Hemmi.
„Hún er svo skemmtilega frjó og
alltaf með ferskar hugmyndir. Það
verður gaman að vinna þetta með
henni því hún er líka svo metnað-
arfull og hefur frjórri sýn á þessa
hluti en aðrir sem ég hef unnið
með, með allri virðingu fyrir þeim.
Svo velur hún sér alltaf mjög hæft
samstarfsfólk sem er lykillinn að
svona sjónvarpsþætti. Það þurfa
allir að vinna saman eins og smurð
vél og vera jafnir," segir Hemmi
með áherslu. „Engir kóngar eða
stjörnur heldur allir saman eins og
einn maður."
Enginn áhugamannaþáttur
Hemmi getur enn sem komið er
ekki gefið upp í smáatriðum með
hvaða sniði nýi þátturinn verður
enda er öll hugmyndavinna á byrj-
unarstigi, en hann ætlar að bjóða
upp á faglega unninn þátt.
„Við verðum að sjálfsögðu í
beinni útsendingu og væntanlega
með sérstaka hljómsveit þáttar-
ins. Við stefnum líka að því að vera
með skemmtiatriði í háum gæða-
flokki. Þetta verður ekki áhuga-
mannaþáttur. Ég hef áður tekið
þátt í slíku og margar af okkar fræg-
ustu hljómsveitum stigu sín fyrstu
skref í gömlu þáttunum mínum. Þá
vorum við að gefa fólki tækifæri en
þessi þáttur verður ekki vettvang-
ur fyrir það, enda hefur fólk orðið
miklu fleiri tækifæri en áður til að
koma sér á framfæri. Þetta verða
engar æfingabúðir enda kominn
tími á þátt sem er „professional"."
f sjöunda himni
Vinnuheiti þáttarins er Hemmi
í sjöunda himni, en Hemmi leggur
áherslu á að það sé aðeins vinnu-
heiti. Það lýsir þó sálarástandi þátt-
arstjórans ágætíega því hann segist
aldrei hafa verið í betra formi eða
liðið betur.
„Ég er svo mikill lukkunnar
pamffll," segir hann og hlær. „Ég
keypti mér nýlega íbúð með ein-
hverju besta útsýni í Reykjavík. Það
er bara toppurinn að geta verið
úti á svölum með útsýni yfir allan
fjallahringinn í austur. Ég er nátt-
úruunnandi í eðli mínu og hef líka
alltaf tækifæri til að bregða mér í
Dýrafjörðinn til fóstru minnar þar.
Þar er mín paradís. Fóstra mín er
78 ára unglingur sem hleypur um
allt og ríður út daglega með gems-
ann sinn. Við eigum líka sameigin-
lega tík sem heitir Lubba og þarna
hleð ég batteríin. Ég naut síðustu
þriggja jóla einn með fóstru minni
í Dýrafirðinum, en við höfum
þekkst frá því ég var lítill pjakkur.
Hún hafði séð mig á Bárugötunni
þegar hún, ung stúlka af Snæfells-
nesinu, var á leið vestur. Hún tók
eftir að ég kunni ekki að ganga,
bara hlaupa, og taldi víst að ég
yrði fínn í beljurnar. Það kom líka
á daginn. Ég var hjá þessum yndis-
legu hjónum í sjö sumur og tengd-
ist þeim tilfinningaböndum. Þau
voru með ótal börn í sveit en auðn-
aðist aldrei að eignast börn sjálf.
Fóstri lést fyrir þremur árum en
fóstra er enn spræk og hress og ég
mun örugglega fara þangað í sum-
ar til að hlaða mig orku áður en ég
fer í gang með nýja þáttinn."
Bíður eftir að guð sendi
honum lífsförunaut
Annars segist Hemmi ekkert
vera of mikið að vinna og er far-
inn að raða verkefnum allt öðruvísi
en hann gerði. Hann hefur sagt frá
því hvernig hann endurfæddist eft-
ir alvarlegt hjartaáfall fýrir tæpum
þremur árum, en þá hætti hjarta
hans að slá í bókstaflegri merk-
ingu.
„Nú hugsa ég fýrst og fremst
um mínar þarfir og langanir. Ég
var í því í 30 ár að þóknast öðru
fólki og þó ég ætti frítíma hafði ég
enga orku til að njóta hans. Nú gef
ég mér tíma fyrir mín áhugamál
og nýt lífsins. Eg fer mikið í sund
í Laugaskarði í Hveragerði því þar
er besta laugin á landinu með
gufubaði og heitum potti. Ef ég er
duglegur að synda verðlauna ég
mig með rjómatertu í Eden. Þarna
sameina ég það að fara út í nátt-
úruna og rækta andann og líkam-
ann. Ég fer lflca oft upp í Heiðmörk
og labba þar eða leggst í grasið og
finn smæð mína. Svo fer ég mikið
út að borða og í leikhús. Það er svo
margt hægt að gera skemmtilegt ef
maður ber sig eftir því. Mér líður
lflca ákaflega vel með sjálfum mér
heima. Það er auðvitað forsenda
þess að geta liðið vel með öðrum
og jafnvel einhverjum lífsförunaut
síðar."
Hemmi segist aðpurður vera
einn og kærustulaus og ekki í nein-
um eltingarleik við konur.
„Ég er alveg sannfærður um að
hann þarna uppi sendir mér réttu
konuna þegar ég er tilbúinn. Hún
mun koma á hárréttum tíma. Ég
veit að ég finn ekki konu á pöbb-
unum eða skemmtistöðunum þar
sem fólk er í allavega ástandi, ég
er búinn með þann skammt. Ég
er pollrólegur og veit að allt ger-
ist þegar það á að gerast og treysti
guði fýrir þessu eins og öðru í mínu
lífi."
Uppfyllti síðustu ósk
þroskaheftrar stúlku
Hemmi hefur oft verið harðlega
dæmdur fyrir að vera of einlæg-
ur og jafnvel væminn en hann er
löngu hættur að taka það nærri sér.
Eitt eftirminnilegasta og tilfinn-
ningaþrungnasta atvik þáttanna
Á tali með Hemma Gunn var þeg-
ar hann sendi kveðju til deyjandi
þroskaheftrar stúlku á Akureyri en
fyrir það uppskar hann geðvonsku-
leg lesendabréf í blöðunum.
Hemmi rifjar þetta upp og seg-
ist ekki skilja í fólki sem getur ekki
opnað hjarta sitt fýrir þeim sem
eiga bágt.
„Það var þannig að ég fékk mik-
ið af bréfum frá þessari þroskaheftu
stúlku á Akureyri. Ég var í miklu
uppáhaldi hjá henni og einhverju
sinni þegar ég var að fara norð-
ur að dæma í fegurðarsamkeppni
Norðurlands ákvað ég að hafa með
mér tökumann og taka viðtal við
hana. Ég á marga þroskahefta vini
og þeir hafa kennt mér óendan-
lega mikið hvað varðar einlægni og
hreinleika hjartans. Stúlkan, sem
var 15 ára gömul,' var mjög glöð að
fá mig í heimsókn og ég eyddi með
henni dagstund. Við gáfum önd-
unum og borðuðum saman og svo
fékk hún að ganga rauða dregilinn
inn í Sjallann um kvöldið.
Nokkrum vikum seinna hringdi
mamma hennar og sagði mér
að hún væri mjög veik og lægi á
Fjórðungssjúkrahúsinu á Akur-
eyri. Hún hafði samt beðið um að
rúmið hennar yrði keyrt fram svo
hún gæti horft á þáttinn minn og
mamma hennar bað mig að senda
henni kveðju og koss.
Ég man svo vel eftir þessu því ég
hálftáraðist sjálfur þegar ég sendi
henni kossinn og bestu kveðjur frá
okkur öllum sem hún hafði gefið
svo mikið. En þá komu þessi les-
endabréf í blöðunum um að þetta
hefði verið svo væmið. Mér fannst
að höfundar bréfanna hlytu að
vera fólk sem gæti ekki einu sinni
tekið utan um sín eigin börn. Að
geta verið að væla út af hlýju sem
ég sýndi veikri stelpu sem fékk sína
síðustu ósk uppfýllta. Hálftíma eft-
ir þáttinn var hún dáin."
Dauðvona vinur í beinni
útsendingu
Hemmi verður dapur á svip-
inn og þó einkunnarorð hans séu
hressleiki er hann mikil tilfinn-
ingavera og óhræddur við að við-
urkenna það.
„Þó gleðin væri oftast allsráð-
andi í þáttunum voru mörg erfið
atvik. Ég var alltaf með einn aðal-
gest og einn þeirra var Ingimar Ey-
dal heitinn. Hanrt kom til mín dagr
inn sem þátturinn var tekinn upp
til að máta sófann en þurfti svo að
fara til læknis. Þegar hann kom aft-
ur hálftíma fyrir útsendingu sagði
hann mér að hann hefði fengið
dauðadóm hjá lækninum og væri
með ólæknandi krabbamein.
Ég bauð honum að hætta við
en hann tók það ekki í mál. Mér
fannst ótrúlega erfitt að spjalla
við hann þetta kvöld á léttum nót-
um og dóttir hans, sem kom hon-
um á óvart í þættinum og söng íýr-
ir hann, gat varla sungið lagið sitt.
Þetta var mjög erfitt og mér leið ör-
ugglega ekki betur en honum, þó
það hljómi kannski eigingjarnt að
segja það."
Kunnu ekki að herma eftir
sjálfum sér
En Hemmi á auðvitað lflca hell-
ing af skemmtilegum minningum
frá þessum tíma. „Þetta var allt í
beinni útsendingu nema síðustu
tvö árin og alltaf hætta á að eitthvað
klikkaði. Eg var mjög ósáttur þeg-
ar þættimir hættu að vera í beinni
þó mörgum fýndist ég hálfbilað-
ur að vilja það frekar en fýrirfram
upptekna þætti. Það urðu auð-
vitað mörg mistök og mörg mjög
skemmtileg atvik," segir Hemmi og
er hvattur til að rifja meira upp.
„Það var til dæmis mikið af
heimsfrægu fólki sem kom til að
skemmta á íslandi sem hafði við-
komu í þættinum hjá mér. Þeg-
ar hljómsveitin Dr. Hook kom til
landsins var ákveðið að þeir tækju
eitt lag í þættinum en þeir komu
frá Bandarflcjunum daginn sem
þátturinn var sendur út. Við vorum
auðvitað vissir um að þeir myndu
mæta og „mæma" eitt lag. Þeg-
ar þeir mættu klukkutíma fýrir út-
sendingu var ákveðið að þeir tækju
Sylvias Mother og við spurðum
hvort þeir væru ekki með „play-
bacldð". Þá ráku þeir upp skelli-
hlátur og sögðust ekkert lmnna að
„mæma".
„Við vorum bara í Bandaríkjun-
um að reykja maríjúana þegar við
urðum aÚt í einu heimsfrægir og
við kunnum ekkert að herma eft-
ir sjálfum okkur," sögðu þeir. Það
varð því að redda hljóðmönnum
og hljóðfærum í grænum hvelli
og svo ætíuðu þeir aldrei að vilja
hætta að spila."
Hemmi hlær hjartanlega.
„Það var líka athyglisvert hvað
frægustu gestirnir voru þægileg-
ir og ljúfir meðan hinir sem þótt-
ust vera eitthvað voru með sífelld
vandræði."
Heldur áfram að hola steininn
Hemmi segist ætía að halda
áfram að vera hann sjálfur og gefa
ómælt af sjálfum sér. „Ég held mér
hafi bara orðið býsna vel ágengt,"
segir hann. „Þegar ég byrjaði hér á
Stöð 2 og Bylgjunni tóku allir utan
um mig og föðmuðu mig að sér.
Það hefði ekki gerst fyrir nokkrum
árum. Ég held að fslendingar séu
sem betur fer að opnast aðeins en
það er kannsld ekki skrýtið þó þjóð
sem er með þrettán vindstig í fang-
ið flesta mánuði ársins lokist og
jafnvel harðlæsist. Við tölum ekki
um tilfinningar. Svo þegar allt í
einu kemur maður sem segir „mér
þykir vænt um ykkur" þá hríslast
um alla ónotin. Ég ætía að halda
ótrauður áfram að reyna að hola
steininn svo við getum öll haldið
áfram að brosa. Eg tek ákvörðun
um það á morgnana að vera sátt-
ur við menn og málefni og þakka
fýrir það á kvöldin. Ég hef lflca öðl-
ast nýjan skilning á máltækinu að
hver sé sinnar gæfu smiður og tel
að hver maður geti haft býsna mik-
il áhrif á líf sitt sjálfur. Ég hef líka
kynnst myrkrinu og þess vegna nýt
ég kannski sólarinnar enn meir,"
segir Hemmi og í þeim orðum
töluðum vinda sér tveir menn að
honum og heilsa - með faðmlagi
að sjálfsögu. Ég þarf að bíða þolin-
móð í nokkrar mínútur þangað til
kemur að mér, því auðvitað skilur
maður ekki við Hemma nema fá
eitt hlýtt faðmlag að lokum.
eddaHPdv.is