Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2006, Qupperneq 49

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2006, Qupperneq 49
DV Menning FÖSTUDAGUR 9. JÚNÍ2006 65 Síðasti viðburður Listahátiðar vorsins var frumflutningur á nítjándu aldar óperu, Galdraskyttunni, i Þjóðleikhúsinu. Þótt ekkert hafi verið til sparað var sviðsetning Jóns Gunnars Þórðarsonar um margt viðvaningsleg, enda flestir flytjendur námsfólk. Dagur kominn á disk * Skot geigar njá skyttunni Er boðlegt að ljúka Listahátíð, I sem skal sýna atvinnumennsku í ílestum ef ekki öllum greinum, i með sýningu áhugamanna og | byrjenda? Sumaróperan sem Hrólfur Sæ- mundsson stofnaði af miklum dugnaði fýrir þremur árum er hið þarfasta fyrirbæri. Hugmyndin að U baki henni er að gefa nýliðum og nemendum tækifæri til að stíga á svið og setjast í gryfju og flytja stór verk. Raunar var umfang Galdra- skyttunnar slíkt að mann sundlaði: fullskipuð hljómsveit í gryfju og stórir kórar á sviði auk einsöngv- ara. Hrólfi er ekki fisjað saman og ekki vantar metnaðinn. Eins manns gaman En óperuflutningur er ekki eins manns gaman og sá grunur læð- ist að þeim sem fylgst hafa með verkefnum Sumaróperunnar að þar ráði mestu hvað Hrólfi og hans nánustu samverkamönnum þykir spennandi fyrir sig sem söngvara. Og þegar við bætist að hljómsveit- arstjórinn hefur litla reynslu og á þýddan texta fyrir óperuna vakna ýmsar spurningar. Raunar má minna á að nálægð i stjórnarmanna í íslenskum lista- stofnunum hefur oft áður orðið þeim að fótarkefli. Önnur ópera sem flutt var á Listahátíð var und- ir stjórn Stefáns Baldurssonar sem er svo óheppinn að vera kvæntur listrænum stjórnanda hátíðarinn- ar. Ekki að Stefán eigi ekki fyllilega skilið að takast á við óperusvið- setningar en er þetta ekki vafa- samt? Þarf ekki að taka á siðaregl- um fyrir stjórnendur opinberra listviðuburða eða þykir nepotismi - sposlur til ættingja þar sjálfsögð regla? Við alþýðu hæfi Galdraskyttan er frá sögulegu sjónarmiði merkilegt verk. Þar mátti heyra ýmsar strófur sem minntu á Wagner, margt var þar beint úr deiglu eldri meistara. Sem áfangi í þróunarsögu óperunnar er hún merkileg, en sem efni fyrir nú- tímaáhorfendur er hún fjarlæg og barnaleg. Eitt þekkt popplag trygg- ir henni ekki vinsældir. Það er aftur pólitískt rétt að syngja hana á íslensku og ætti að gera sem oftast, leyfi tónlistin það. En til hvers að syngja á íslensku ef nánast ekki heyrist orðaskil? Er þá ekki eins gott að syngja á frummáli og nota textaskjá? Offlæði og skortur Margt var fallegt í útliti sýn- ingarinnar: búningar, leikmynd, lýsing. En listrænir stjórnend- ur kunnu sér ekki hóf, hlaðið var inn á sviðið margskonar minn- um: andlit sem auga (Bauhaus) og handleggir úr vegg (Svoboda). Myndbandskeyrslu var ofaukið á tungl eða jörð sem var efst á svið- inu. En allt var þetta ríkmennlega útbúið og flott. Dansatriðum var líka ofaukið í sýningunni en þau gáfu til kynna hugarástand hins illa geranda í verkinu. Það var sama hvað dans- ararnir djöfluðust að allt var það utanborðs og óþarft. En það tók athygli frá frumstæðum leikmáta hjá mörgum sem fóru með burð- arhlutverk í sýningunni. Raunar fannst mér kórinn standa sig langbest í sýningunni og sjaldnast án þess að vera vand- ræðalegur á sviðinu. f mín eyru skorti á bassaraddir, en kvenna- kórinn var fallegur. Það er ánægjulegt að sjá full- skipaða hljómsveit í gryfju Þjóð- leikhússins, þar til það rifjast upp að þessir krakkar voru að vinna langt undir töxtum. Er það niður- staðan eftir öll þessi ár að íslensk- Galdraskyttan er frá sögulegu sjónarmiði merkilegt verk. Þar mátti heyra ýmsar strófursem minntu á Wagner, margt var þar beint úr deiglu eldri meistara. ir tónlistarmenn eru enn að koma fram á Listahátíð fyrir lítið fé? Tóm tvímæli Enginn söngvaranna bar af. Kolbeinn Ketilsson var sýnilega sjóaður á sviði, en Elísa Vilbergs- dóttir hefur flöktandi vfbrató og náði ekki að heilla. Hlín Péturs- dóttir var kátleg og kómísk. Hrólfur er raddsterkur maður og efnilegur, en öll þrjú líða fyrir þjálfunarleysi á sviði. Sá flutningsmáti að syngja allt úti í sal takmarkar verulega samband milli söngvara og það drama sem þó er í þessu ævintýri. Semsagt - ekki nógu gott þó miklu væri tjaldað - og spurning- unni ósvarað hvort þetta eigi er- indi á opinberan vettvang sem fullburða atriði sem Ijúka skal Listahátíð. En fyrir það þarf líklega enginn að svara - allavega ekki á opinberum vettvangi. pbb@dv.isj Sú var tíðin að Dagur Sigurðarson, stórskáld og pörupiltur afguðs náð, bannaði félögum I Leikarafé- laginu að lesa Ijóðin sín opinber- lega. Hann las því perlurnar sinar mestsjálfur. Fátt er varðveitt af lestri hans. Nú hefur Þór Eldon smalað saman á disk upptökum með Degi og lagt við tónlist. Þetta varð tíska um það leyti sem menn gátu farið að flytja með sér segulbandstæki á vettvang og var talsvert stundað, einkum lögðu djassistar hljóma við lestur. Beat- skáldin sóttust eftir þessu svo Dagur er i góðum félagsskap. Hér á landi var það fyrst Karl Runólfs- son sem samdi hljómlist við Ijóð skömmu eftir 1960. Smekkleysa sm/ehf gefur út í takmörkuðu upplagi. Diskurinn inniheldur 7 af meistaraverkum Dags, sem hann flytur sjálfur við undirleik Þórs. Upptökurfóru fram á timabilinu 1985 til2005, í Reykjavik, Hudiksvall og La Fare les Oliviers. Djassádisk Andrés Þór Gunnlaugsson hefur sent frá sér nýjan geisladisk með frumsaminni djasstónlist. Hann kallar diskinn Nýjan dag. Djasskvartett leikur með Andrési á diskinum, en auk Andrésar, sem leikur á gítar, skipa kvartettinn Sigurður Flosason á altó saxófón, Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson á ’ kontrabassa og Scott McLemore á trommur. Nýr dagur er fyrsti geisladiskur Andrésar í eigin nafni og ein- göngu með frumsömdum verkum hans, en fyrir tveimur árum kom út diskurinn It was a very good year með hollensk-íslenska tríóinu; Wijnen, Winter & Thor. A þeim diski varm.a. verkið Þórdísardans eftir Andrés, en það var tilnefnt til Islensku tónlistar- verðlaunanna 2004 sem djasstón- smíð ársins. Nýr dagur var hljóðritaður í hjóðveri FÍH. Upptökumaður var Stefán Örn Gunnlaugsson, en um hljóðblöndun og hljómjöfnun sá Gunnar Smári Helgason. Hönnun umslags varihöndum Kristjáns Freys. Dimma ehf. gefur Nýjan dag út og dreifir i verslanir. Leiðbein- andi söluverð er kr. 1.999. Meek gerir það gott JamesMeek, breski rithöf- undurinn sem hingað kom á Bókmenntahá- tíðina í fyrra og kynnti skáld- sögu slna, The Peoples Act of Love sem Árni Óskarsson kallaðii þýðingu sinni I nafni kærleik- ans, hefur notið mikillar hylli. Hann var tilnefndur til Whitbread-verðlaun- anna og Booker, og var verðlaun- aður ísíðustu viku Ondatje- prisnum fyrir bestu staðarlýsingarnar í sögunni. Þá getur hann glatt sig við að Johnny Depp er búinn að kaupa réttinn afsögunni þó ekki fylgl á þessu stigi neinar fréttir hvað Depp ætlar sér í fjölskrúðugu persónugallerii sögunnar. tiie people's'^ ACT of LOVE .TAjMES iMEEK
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.