Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2006, Page 52

Dagblaðið Vísir - DV - 09.06.2006, Page 52
68 FÖSTUDAGUR 9. JÚNl2006 Helgin DV „la, hérna! Ég á ekki til eitt ein- asta orð,“ sagði Unnur Steinsson þegar henni voru færðar þær fréttir að hún hefði verið kosin „fallegasta kona landsins" af álitsgjöfum DV. „Ég er alveg gáttuð á þessu en það er gott til þess að vita að valið stóð á milli fallegustu kvenna landsins en ekki stúlkna. Það þýðir líklega að dóttir mín hafi ekki verið í þeim flokki enda finnst manni alltaf að börnin eigi að vera móðurbetrungar," segir Unnur brosandi. Fegurðin genetísk Varðandi leyndarmálið að baki fegurðinni segist Unnur ekki eiga mörg ráð. „Ég er eiginlega bara kjaft- stopp en ég hlýt að vera svona vel af guði gerð, eða ég vona það. Þetta er sjálfsagt genetískt en ég átti fal- lega foreldra," segir Unnur og ítrekar hversu hissa hún sé að lenda á svona listum enn þann dag í dag. „Ég skildi þetta þegar ég var í for- grunni og var meira áberandi en aðr- ir en síðustu árin hef ég farið mínar eigin leiðir og ekki látið mikið á mér bera. Unnur Birna hefur samt örugg- lega hjálpað mömmu sinni að ná þessum titli, ekki það að ég hafi ver- ið að sækjast eftir honum. Einhvern tímann hlýtur þetta að hætta og þá verður maður að læra að bakka út. í rauninni hélt ég að ég væri löngu búin að því enda búin að fá ágætis arftakaíþessu." Mæðgur í reglulegu sambandi Unnur segist vera í góðu sam- bandi við Unni Bimu þótt dóttirin sé að ferðast um allan heiminn í hlut- verki Miss World. „Það er afskaplega gaman að fylgjast með því sem hún er að gera þessa dagana. Hún er að „Ég er eiginlega bara kjaftstopp en ég hlýt að vera svona velafguði gerðf eða ég vona það." ferðast, hitta fólk og fá tækifæri sem aðrir geta aðeins látið sig dreyma um. Því er um að gera fyrir hana að njóta þess. Hún er mjög heppin að hafa fengið tækifæri til að upplifa þessa lífsreynslu," segir Unnur og bætir við að þær mæðgur séu í reglu- legu sambandi. „Hún kemur talsvert heim inn á milli enda ekki svo langt til London þar sem hún hefur aðset- ur. Svo tölum við líka reglega sam- an í símann og í gegnum netið svo sambandsleysið hefur ekki verið að gera okkur lífið leitt. Við tölum okkar tungum og stundum skilur karlpen- ingurinn á heimilinu ekkert og hrist- ir bara hausinn og segir okkur tala drottningartal," segir Unnur bros- andi. Allt er gott í hófi Þegar hún er ít- rekað beðin um ráð handa öðrum kon- um segir hún að allt sé gott í hófi. „Ég er enginn rosalegur sport- isti en ég hreyfi mig reglulega, fer í ræktina og í göngu- túra. En ég er ekki manísk í neinu. Ég er mikil náttúrum- anneskja og nota lít- ið af snyrtivörum en hugsa vel um húð- ina. Mataræðið skiptir líka miklu máli og þótt ég hafi aldrei þurft að hafa áhyggjur af því sem ég set ofan í mig passa ég mig að hafa rétta samsetningu í matnum," segir Unn- ur Steinsson, falleg- asta kona íslands og móðir fallegustu konu í heimi. indiana@dv.is V. Unnur Steinsson hefur verið valin fallegasta kona íslands af álitsgjöfum DV. Unnur átti ekki eitt einasta orð þegar henni voru færðar fréttirnar. Hún segir leyndarmálið að baki fegurðinni vera rétt mataræði, hreyfingu og góða umhirðu húðarinnar. s-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.