Freyr - 15.03.1972, Blaðsíða 10
Nýveiddur lax úr Þverá.
Ljósrn.: Þór Guðjónsson.
hressingu í veiðiskapinn. Þessi þróun kem-
ur heim við reynslu annara þjóða, en ó-
trúleg aukning hefur víða erlendis orðið á
þessu sviði. Það leiðir til þess að krafa um
aukna og betri aðstöðu til veiöa eykst sí-
fellt.
Vissulega er ekki auðvelt að segja fyrir
um hversu ör aukning í stangarveiðina hér
á landi verði í framtíðinni. Stytting vinnu-
tímans og þar með auknar frístundir hefur
sitt að segja í þessu efni, auk vaxandi
fólksfjölgunar. Erlendis, á írlandi, hefur
verið gert ráð fyrir að aukning nemi helm-
ingi í lok þessa áratugs og um a. m. k. 100%
við næstu aldamót.
Erlendir veiðimenn.
Erlendir veiðimenn hafa sótt hingað til
veiðiskapar í rúmlega öld og hér höfðu
þeir lengst af „frían sjó“ ef svo má að
orði komast. Á þessu varð breyting um og
eftir síðustu heimsstyrjöld, þegar lands-
menn tóku í ríkum mæli að iðka þessa
skemmtilegu og hollu íþrótt — stangar-
veiði. Um hina erlendu veiðimenn hefur
ósjaldan verið talað í seinni tíð og þeir þá
oft verið þyrnir í augum heimamanna.
Þetta er eðlilegt því að hinn þjóðlegi metn-
aður er ávallt fyrir hendi og hér er hann
í fylgd með hagsmunabaráttunni. íslenzkir
stangarveiðimenn vilja sitja einir að kök-
unni.
Erlendir veiðimenn áttu um skeið óhægt
með að komast til veiða í góðar laxveiðiár
vegna þess hve íslenzkir stangarveiðimenn
og samtök þeirra héldu fast um veiðina.
Á þessu hefur orðið nokkur breyting til
batnaðar fyrir hina erlendu veiðimenn
síðustu árin og fer þeim fjölgandi með ári
hverju. Kemur hvoru tveggja til, að ís-
lenzkir veiðimenn telja veiðileigur vera
býsna háar, og aukins frjálslyndis gætir
gagnvart erlendum veiðimönnum. Sem
dæmi um það má nefna að stærsta stang-
arveiðifélagið hér á landi er nú að búa sig
í stakkinn til að selja erlendum veiðimönn-
um veiðidaga í einni af „sínum ám.“ Slíkt
hefði þótt óhugsandi fyrir nokkrum árum.
Laxaland — ferðamannaland.
Það er yfirlýst stefna að ísland sé svo-
kallað f erðamannaland, en mjög mikill
vöxtur hefur átt sér stað á þessu sviði.
Þannig hefur fjöldi erlendra ferðamanna,
sem hingað hafa komið síðasta áratug, auk-
izt árlega að jafnaði um 15 af hundraði og
98
F R E Y R