Freyr

Árgangur

Freyr - 15.03.1972, Blaðsíða 35

Freyr - 15.03.1972, Blaðsíða 35
Aldur bænda XJm það hefur verið rætt í FREY, að við- eigandi sé að kanna aldur hænda. Á eyðublöðum til búfjártalingar, sam- kvæmt lögum um forðagæzlu, er dálkur þar sem gera skal grein fyrir aldri bænda. Ýmsir útfylla dálk þennan og er á þar til- færðum tölum byggt yfirlit það, sem taflan í grein þessari sýnir. Hugleiðingar um efnið má rekja á fleiri vegu en gert er í eftir- farandi. Ritstj. Að því er vikið hvað eftir annað í tíma- ritum landbúnaðarins í grannlöndum okk- ar, að ættliðaskipti innan bændastéttarinn- ar séu hvergi nærri svo ör sem vera bæri. Þar er yfir því kvartað, að yngri menn séu ófúsir til að hefja búskap og því leiði það til þess, að öldruðu og gömlu mennirnir sitji jarðir sínar lengur — og stundum miklu lengur — en eðlilegt sé. Ekki er fráleitt að álykta, að hér á landi séu aldr- aðir og gamlir bændur einnig þrásætnari við forsjá búa sinna en vera skyldi svo að yngri bændaefnum er þannig torvelduð bú- skaparbyrjun. Við þá frásögn má og bæta því, að bú- jörðum hefur fækkað að nokkrum eða miklum mun í ýmsum — og máske flest- um — löndum Norður-Evrópu á síðari ár- um. Einnig það hefur leitt til þess, að hinir öldnu hafa setið lengur en fyrrum. Með stækkandi búum skyldu menn ætla að frekar væri þörf á ungum bændum og vel starfhæfum til þess að gegna marg- þættum og umfangsmeiri störfum en áður gerðust á sömu bújörðum. Þetta virðist ekki vera reynslan. Eru það að sjálfsögðu vélarnar, sem hafa tekið við verulegum hluta erfiðisverkanna, þeim störfum, sem vinnumenn bænda höfðu áður. Staðreyndir eru þær, hvað sem hver segir um forsend- urnar, að bændur munu yfirleitt vera eldri en fyrr gerðist og ekki verður af tölfræði- legum upplýsingum séð, að þeir hefji bú- skap yngri en áður var. Fyrrum voru ungir menn jafnan í vinnumennsku og söfnuðu nokkrum verðmætum áður en þeir hófu búskap fyrir eigin reikning. Nú er það oft svo að þeir, sem ungir stunda ýmsa at- vinnu utan bústarfa, hverfa að ævistarfi utan landbúnaðar. Þessvegna er ekki eftir- spurn eftir jarðnæði til búskapar. Hefur sú stefna ef til vill nokkur áhrif á hækk- andi meðalaldur búenda, eins hjá okkur og öðrum. Fyrrum var það algengt hjá bændum frænda okkar á Norðurlöndum, að öldnu bændurnir létu af búskap á sextugsaldri, eða þegar elztu synir höfðu aldur til að taka við búum, og fóru þá öldruðu hjón- in í litla húsið og störfuðu eftir megni á búi sonarins. Þetta var algengt í Nor- egi og geta ferðamenn, er þar fara um sveitir, komizt að raun um, að víða eru þar tvö íbúðarhús, sem nú eru kölluð sum- arhúsið og vetrarbústaðurinn, en voru raunar fyrrum íbúðarhús tveggja ættliða. Nú eru það elliheimilin eða dvalarheim- ilin, sem taka við aldraða fólkinu ef það F R E Y R 123

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.