Freyr - 15.03.1972, Blaðsíða 28
STEFÁN AÐALSTEINSSON:
VIÐBRÖGÐ IÐNAÐARINS
við umbótum á ull og gærum
(Erindi flutt á sauðfjárrœktarráðstefnu 22.—27. marz 1971).
Dr. Stefán Aðalsteinsson,
ullarmatsformaður.
Eftirfarandi bréf og spurningarlistar, dags.
21. jan., 1971, voru sendir til allra ullar-
þvottastöðva, ullarverksmiðja og sútunar-
verksmiðja í landinu:
„í vændum er að halda ráðstefnu um
sauðfjárkynbætur á vegum Búnaðarfélags
íslands síðari hluta marz, 1971.
Á þessari ráðstefnu mun meðal annars
verða rætt um gildi þess að leggja vax-
andi áherzlu á kynbætur á sauðfé með til-
liti til ullarfars og gærugæða.
Því ber nauðsyn til að kynna ráðunaut-
um í búfjárrækt og öðrum, er ráðstefnu
þessa sækja ástand og horfur í ullar- og
skinnaiðnaði, viðhorf iðnaðarins til þessara
hráefna og óskir iðnaðarins um umbætur
á þeim.
Mikilvægt er, að sem gleggst mynd fáist
af því, hvaða umbóta er þörf á þessum
hráefnum, og hvers virði þær umbætur
geta orðið sauðfjárrækt og iðnaði úr ull og
gærum í landinu.
Af þessu tilefni hef ég ákveðið að senda
spurningarlista til ullarþvottastöðva, ullar-
verksmiðja og sútunarverksmiðja landsins
og leita til þeirra um ýmsar upplýsingar,
sem að gagni mega koma við ákvörðun á
kynbótastefnu næsta áratugs í sauðfjár-
ræktinni.
Það skal tekið fram, að ætlunin er að
nota þau svör, sem berast, til kynningar á
ástandinu í ullar- og gærumálum lands-
manna. Vil ég því hér með óska leyfis til
að mega nota upplýsingarnar eftir því sem
þörf krefur.
Svör við hjálögðum spurningarlista ósk-
ast send fyrir 1. marz 1971.“
SPURNINGALISTI TIL
ULLARÞVOTTASTÖÐVA
A.
Hversu mikið magn af óþveginni, íslenzkri
ull berst ullarþvottastöðinni árlega?
B.
Hvernig skiptist þetta magn á gæðaflokka
og hversu mikið magn af hreinni ull fæst
úr hverjum gœðaflokki?
C.
Eftir hvaða verðhlutföllum greiðir ullar-
þvottastöðin einstáka ullarflokka við end-
anlegt uppgjör?
116
F R E Y R