Freyr

Árgangur

Freyr - 15.03.1972, Blaðsíða 12

Freyr - 15.03.1972, Blaðsíða 12
ánna koma úr stöðuvötnum, en það hefur mikið gildi fyrir þær sem veiðiár. Skemmtilegt er að komast að raun um það við athugun á staðsetningu straum- og stöðuvatna, hvað bróðurlega betri berg- vatnsánum hefur verið skipt milli hinna fjögurra sýslna kjördæmisins. Hið sama gildir um stærri stöðuvötnin. 40 vatnsföll og 170 stöðuvötn. í Vesturlandskjördæmi eru rúmlega 40 lax- og göngusilungsár og 170 stöðuvötn, stór og smá. Eru þá ótalin vötn og tjarnir, sem ekki ná 300 metra breidd. Flatarmál þessara 170 stöðuvatna er líklega samtals um 100 km2 eða 10 þús. hektarar. Ellefu stærstu vötnin eru samtals 57.2 km2 að flatarmáli, en stærð hinna 159 líklega alls um 45—50 km2. Af þessum síðarnefndu vötnum er tæplega helmingur meira en 1000 metrar á lengdina eða breiddina. Bezta laxveiðisvæði landsins. Laxveiði í Vesturlandskjördæmi er góð, enda er það bezta kjördæmið að þessu leyti. Nemur veiðin um 40 af hundraði allrar veiði á laxi í landinu. Um 2/3 hlutar veiðinnar í kjördæminu fæst á stengur en hitt í net. Um silungsveiðina er minna hægt að segja vegna þess, að skýrslusöfnun um þá veiði hefur víða verið áfátt, enda nýting hennar oft tilviljunarkennd. 30 tonn af vatnasilungi. Framleiðslugeta stöðuvatna er afar mis- munandi vegna legu þeirra, vatnsdýpis og annara aðstæðna. Þá eru sum vatnanna fisklaus. Líklega má áætla fiskframleiðslu á hverja flatareiningu sem svarar 3 kílóum árlega að jafnaði á hvern hektara. Yrði því heildarafrakstur allra vatna á fyrr- greindu svæði um 30 þúsund kíló, er sam- svaraði um 90 þúsund 330 gramma silung- um. Vatnasviðið. Vatnasvið straumvatna í kjördæminu er rúmlega 9 þúsund km2. Er vatnasvið vatns- falls það svæði, sem vatn rennur af til vatnsfallsins. Vatnasvið kjördæmisins er tæplega 10 af hundraði vatnasviðs alls ís- lands. Mesta vatnsfallið á þessu svæði er 100 F R E Y R

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.