Freyr - 15.03.1972, Page 21
MAGNÚS SIGSTEINSSON:
RAFMAGN
í SVEITUM
Nokkrar leiðbeiningar til bœnda á orku-
veitusvœðum Rafveitna ríkisins um kaup
og notkun raforkunnar.
Notkun raforku í sveitum hefur farið ört
vaxandi á síðustu árum. Auk raforku til
venjulegra heimilisnota þarf bóndinn í æ
vaxandi mæli raforku til búrekstrarins, t.
d. til þess að knýja mjaltavél, kæla mjólk-
ina og hita vatn til þvotta, við loftræsti-
viftur, færibönd, til lýsingar í gripahús-
um og fyrir margs konar rafmagnshand-
verkfæri. Hann þarf einnig raforku til þess
að súgþurrka heyið, og margir bændur eru
farnir að hita íbúðarhúsin að einhverju eða
öllu leyti með raforku.
Langflest sveitabýli fá nú raforku frá
orkuveitum Rafmagnsveitna ríkisins.
Nokkur býli í nágrenni þéttbýlis fá raf-
orku frá bæjarafveitum, sem hafa sínar
eigin gjaldskrár, og enn eru til á landinu
nokkuð mörg býli, sem ekki hafa fengið
raforku frá samveitum, heldur hafa dýrar
heimilisrafstöðvar. — Smásölugjaldskrá
Rafmagnsveitna ríkisins er í nokkuð mörg-
um liðum, og bændum er því oft ekki fylli-
lega ljóst, hvernig hagkvæmast er fyrir þá
að haga sínum raforkukaupum og notkun
raforkunnar. Auðvitað vilja allir fá rafork-
una á sem hagstæðustu verði eins og aðrar
„neyzluvörur.“
í eftirfarandi grein verður reynt að
benda á nokkur atriði, sem verið geta
bændum á orkuveitusvæðum Rafmagns-
veitna ríkisins til leiðbeiningar í þessum
málum. Tekin verða dæmi um notkun á
þeim töxtum í gjaldskránni, sem helzt
koma til greina við sveitastörf. Allir út-
reikningar eru miðaðir við gjaldskrá frá 1.
nóvember 1970.
Heimilishald, búrekstur og súgþurrkun.
Taxti 21 er ætlaður til almennra heimilis-
þarfa og búrekstrar. Samkvæmt þessum
taxta er greitt orkugjald, kr. 2,85 fyrir
hverja notaða kílówattstund (hér eftir
skammstafað kWst. Ein kWst er sú orka,
sem rafaflið 1 kílówatt — kW — lætur í
té á einni klukkustund). Auk þess eru
greidd nokkur fastagjöld eftir stærð íbúð-
arhúss og útihúsa (F 3) og leiga fyrir einn
mæli (F 1).
Dæmi um notkun þessa taxta: Gerum
ráð fyrir 6500 kWst. árseyðslu við heimilis-
hald og búrekstur annan en súgþurrkun á
heyi:
Orkugjald 6500 kWst. á kr. 2,85 .. kr. 18.525,00
Fastagjald (ca. 8 gjaldeiningar) . kr. 2.880,00
Mælisleiga ....................... kr. 912 00
Samtals kr. 21.317,00
Hver kWst. kostar þá kr. 3,43.
um færzt í vöxt.
F R E Y R
109