Freyr - 15.03.1972, Blaðsíða 22
Þeir bændur, sem kaupa raforku til
heimilisnota og búrekstrar eftir þessum
taxta, fá raforku til súgþurrkunar á heyi
eftir taxta nr. 34. Um notkun á þeim taxta
vísast til greinar í ágústhefti Freys, 15.—
16. tbl. 1971: „Raforka til súgþurrkunar á
heyi.“ Hér verða þó tekin með tvö dæmi
um notkun 5 og 10 hestafla rafmótora við
súgþurrkun:
Aflmarktaxti.
Taxti 23 nefnist aflmarktaxti. Notandinn
kaupir þá visst raforkumagn — ákveðinn
fjölda kW — og greiðir fyrir það ákveðið
fastagjald á ári; upphæðin fer eftir fjölda
kW eins og sjá má í gjaldskránni (leiga á
einum mæli er innifalin). Síðan getur not-
andinn hagnýtt sér raforkuna innan afl-
stillingarinnar að vild — til heimilisþarfa
5 hestafla mótor, 3 68 kW: Af’giald: kr. 955,00 X 3,68 kW = 3.514,40
Fastur árlegur kostnaður: Mælisleiga: kr. 76,00 X 12 mán. = 912,00
Samtals kr. 4.426,40
Breytilegur kostnaður: Orkugjald: kr. 0,54 á kWst.
Notkun Orkugj. Fastagj. Samtals kr./
klst. kWst. kr. kr. kr. kWst.
500 1840 993,60 4.426,40 5.420,00 2,95
750 2760 1.490,40 — 5.916,80 2,14
1000 3680 1.987,20 — 6.413,60 1,74
1500 5520 2.980,80 — 7.407,20 1,34
10 hestafla mótor, 7,35 kW: Aflgja’d: kr. 955,00 X 7,35 kW = 7.019,25
Fastur árlegur kostnaður: Mælisleiga: kr. 76,00 X 12 mán. = 912,00
Samtals kr. 7.931,00
Breytilegur kostnaður: Orkugjald: kr. 0,54 á kWst.
Notkun Orkugj. Fastagj. Samtals kr./
klst. kWst. kr. kr. kr. kWst.
500 3675 1.984,50 7.931,25 9.915 75 2,70
750 5512 2.976,75 — 10.908,00 1,98
1000 7350 3.969,00 — 11.900,25 1,62
1500 11025 5.953 50 13.884,75 1,26
Þessi tvö dæmi sýna, hvað notkun mót-
orsins kostar. Stærsti liðurinn eru fasta-
gjöldin. Af hálfu rafveitnanna er það
hvatning til þess að mótorarnir séu ekki
hafðir stærri en brýn nauðsyn ber til, svo
að notkun þeirra valdi ekki óhóflegum á-
lagstoppum. Orkugjaldið er hins vegar u.
þ. b. helmingi lægra heldur en orkugjald
til vélnotkunar í iðnaði. Eins og sjá má af
töflunum, borgar sig að nýta súgþurrkun-
ina vel vegna hins lága orkugjalds. Fasta-
gjöldin þarf að greiða hvort sem mótorinn
er notaður fáar klukkustundir á ári eða
margar.
110
og búrekstrar, súgþurrkunar og húshitunar
— fyrir 54 aura á kWst. Ef álagið fer yfir
aflstillinguna, greiðist hver kWst. umfram
með kr. 5,85. Hér er sem sé um að ræða
eins konar samning, sem rafmagnsnotand-
inn gerir við Rafmagnsveiturnar um á-
kveðin raforkukaup fram í tímann. Taxti
þessi hvetur því til jafnrar notkunar allt
árið. Fastagjöldin eru nokkuð há, en orku-
gjaldið lágt, og þessi taxti verður því sér-
lega hagkvæmur fyrir þá rafmagnsnotend-
ur, sem geta hagnýtt sér vel raforkuna
innan aflstillingarinnar. Fyrir bændur er
það í flestum tilfellum auðvelt. Fyrir utan
F R E Y R