Freyr - 15.03.1972, Síða 23
Gripahúsin er bezt að loftræsta með rafknúnum
viftum.
notkun til heimilisþarfa og smærri raf-
magnstækja á búinu geta þeir notað mik-
inn hluta raforkunnar fyrir súgþurrkunar-
mótorinn á sumrin og upphitun íbúðar-
hússins á vetrum og fengið þannig stöðuga
notkun allt árið.
Notkun aflmarktaxta.
Verða nú tekin tvö einföld dæmi um notk-
un aflmarktaxta:
1. Gerum ráð fyrir, að notandi hafi 10
kW aflstillingu og nýti þau aðeins 1000
klst. á ári eða samt. 10.000 kWst. (í árinu
eru 8.760 klst.). Sé ekki gert ráð fyrir
yfirnotkun, kostar þessi raforka sem hér
segir:
Fastagjald 10 árskW ............. kr. 25.690,00
Orkugjald 10.000 kWst. á kr. 0,54 .. kr. 5.400,00
Samt. kr. 31.090,00
Hver notuð kWst. kostar þá kr. 3,11 að
meðaltali.
Næst er þá að athuga, hvernig þessi raf-
orkunotkun —• 10.000 kWst. — gæti skipzt
í flokka og reikna verðið samkvæmt al-
mennum gjaldskrárliðum (nr. 21 og 34) til
samanburðar:
Ekki væri fjarri lagi að áætla, að notk-
unin skiptist þannig, að 6500 kWst. væru
notaðar við heimilishald og búrekstur og
3500 kWst. til súgþurrkunar með 10 hest-
afla = 7,35 kW rafmótor.
Orkugjald 6500 kWst. á kr. 2,85 .... kr. 18.525,00
Fastagjöld (F 1 og F 3).......... kr. 3.792,00
Orkugjald 3500 kWst. á kr. 0,54 .... kr. 1.890 00
Fastagjöld af 7,35 kW mótor ..... kr. 7.931,00
Samtals kr. 32.138,00
Samkvæmt því kostar hver kWst. að
meðaltali kr. 3,21.
í þessu dæmi var um mjög litla notkun
á aflmarktaxtanum að ræða, en þrátt fyrir
það er verð hverrar notaðrar kWst. heldur
lægra en það væri, ef raforkan væri keypt
eftir taxta nr. 21 og nr. 34. Þess ber líka
að gæta við þennan samanburð, að not-
andi aflmarkstaxtans á kost á viðbótar-
orku umfram þessar 10.000 kWst. fyrir að-
eins 54 aura á kWst. Þá orku mætti t. d.
Kælivélin heldur mjólkinni í tanknum 3°—4° C
kaldri.
F R E Y R
111