Freyr - 15.03.1972, Síða 27
Aukin tækni við öflun heyja krefst afkastamikillar
súgþurrkunar í hlöðunni.
legum stað, t. d. í eldhúsi, getur notandinn
auðveldlega fylgzt með álaginu á hverjum
tíma.
* * *
Af dæmunum tveimur hér á undan ætti
það að vera ljóst, að aflmarktaxtinn er í
flestum tilfellum mjög heppilegur fyrir
bændur, enda fer þeim bændum sífellt
fjölgandi, sem kaupa alla sína raforku eftir
þeim taxta. Um notkun aflmarktaxtans við
sveitastörf gildir í stuttu máli þetta:
Vegna fastagjaldanna skal notandinn
ekki velja hærri aflstillingu en svo, að unnt
sé að framkvæma allar daglegar athafnir,
sem raforku þarf til, án teljandi óþæginda.
Bændur geta t. d. miðað aflstillinguna við
stærð súgþurrkunarmótors að viðbættri
stærð þeirra rafmagnstækja á búinu, sem
óhjákvæmilega þurfa að vera í gangi sam-
tímis. Þá þarf einnig að vera fyrir hendi
nægileg raforka til nauðsynlegra starfa
húsfreyju og fyrir heimilistæki eins og
kæliskáp og frystikistu.
Orkunotkuninni verður að dreifa sem
haganlegast yfir daginn, til þess að forðast
yfirálag og þar með dýra umframnotkun.
Um það verða bóndinn og húsfreyjan að
hafa nána samvinnu, sérstaklega á sumrin,
þegar þörf er á mikilli raforku úti við. Af-
gangsorkuna, sem er fyrir hendi t. d. þegar
súgþurrkunarmótorinn er ekki í gangi,
verður svo að nýta á hverjum tíma eftir
föngum eins og áður er sagt.
í dæmunum tveimur var reiknað með
10 kW aflstillingu. Notkun raforku í bú-
skap er orðin svo fjölþætt, að það er varla
raunhæft að reikna með lægri aflstillingu
fyrir meðalbú og stóru búin þurfa yfirleitt
meira, 12—15 kW. Ný og ný rafmagnstæki,
sem létta bústörfin og gera þau meira að-
laðandi, koma til sögunnar og aukin tækni
við öflun heyja krefst þess að unnx sé að
hirða örar í hlöðurnar en áður tíðkaðist.
Til þess þarf afkastamikla súgþurrkun í
hlöðunum. Algengasta stærð súgþurrkun-
armótora er því nú orðin u. þ. b. 10 hestöfl
og ef raforkan er keypt eftir taxta nr. 34,
verða fastagjöldin af slíkum mótor mjög
há. Hitt er svo annað mál, að bændur, sem
hafa fasttengdan rafmótor við súgþurrkun-
arblásarann, eiga skilyrðislaust að nýta
súgþurrkunina það vel, að aldrei hitni í
heyinu, hvort sem þeir kaupa raforkuna
eftir aflmarktaxta eða súgþurrkunartaxta.
Starfsmenn Rafmagnsveitnanna geta
verið rafmagnsnotendum til mikillar að-
stoðar við val á taxta og leiðbeint um rétta
notkun raforkunnar. Ég vil benda þeim
bændum, sem ekki hafa nú þegar fengið
aflmarktaxta, á að snúa sér til þeirra og
ræða málin og fá þá e.t.v. til þess að gera
samanburðarútreikninga á aflmarktaxta og
almennum töxtum miðað við ákveðna notk-
un. Fjölmargir bændur hafa á síðustu ár-
um séð sér hag í því að skipta yfir á afl-
marktaxta. Flestir þeirra hafa þá fengið
rafhitun í íbúðarhúsið um leið til þess að
nýta afgangsorkuna sem bezt.
F R E Y R
115