Freyr - 15.03.1972, Side 32
hluti gráu ullarinnar er ekki með réttum
gráum lit.
III. fl. getur verið góð ull, ef hún væri
ekki of gul og flókin og menguð af mori.“
C.
Hvers virði væri breyting á helmingi lak-
asta jlokks í bezta flokk?
Verksmiðja a:
„Það má segja, að fyrir utan I. flokk, eru
hinir flokkarnir svipaðir. II. flokkur af
hvítu ullinni er aðeins betri en III. flokkur,
en aðalmunurinn á þessum flokkum er að
III. fl. er togmeiri og ætlaður til annarra
nota en II. fl. Vegna þess arna er ekki
hægt að tala um lakasta flokk, sem verk-
smiðjan notar. Lélegustu ullina sem til
fellur notar verksmiðjan ekki.“
Verksmiðja b:
„Það vantar mjög mikið af ull í bezta flokk,
þannig að um verulega verðmætisaukningu
yrði að ræða.“
D.
Árlegt framleiðslumagn:
Lopi
Hespulopi
Prjónaband
Gólfteppaband
Vefnaðarband
Dúkar ca
Sokkar
Ýmislegt
Tonn %
87 10
121 13
206 23
182 20
111 12
169 230 þús. metra 18
1 0
36 4
ca 913 100
E.
Hvaða ullarflokkar eru notaðir i hverja
vörutegund?
Tegund vöru: Ullarflokkar
Lopi I., II., S, G, M
Hespulopi I., II., S, G, M
Prjónaband I., II.
Vefnaðarband Allir flokkar
Gólfteppaband III.
Dúkar Allir flokkar
Sokkaband III.
Ýmislegt III. og affall.
F.
Hvaða vöruflokkar eru eftirsóttastir?
Verksmiðja a:
„Prjónles og ofnir dúkar, þ. e. værðarvoðir,
áklæði og tweed eða sportfataefni.“
Verksmiðja b:
„Verðmestu vörurnar og þær sem hafa
beztu sölumöguleikana er þær vörur, sem
framleiddar eru úr beztu gæðaflokkunum.“
G.
Hvers virði vœri átak til að bæta ullina?
Verksmiðja a:
„íslenzka ullin er núna ca. 30% hærri í
verði en heimsmarkaðsverð er á ull og það
gefur að skilja að svo getur ekki verið til
frambúðar, þar sem verksmiðjur, sem
vinna úr þessari ull, verða ekki samkeppn-
isfærar og þola ekki þennan mismun til
lengdar. Ef hægt er að fá bændur til þess
að rækta upp ullina og hirða betur um
hana, ætti að vera hægt að auka ullar-
magnið um allt að 50% og lélegustu flokk-
arnir, sem verksmiðjan notar ekki, en eru
fluttir úr landi fyrir sáralítið verð, verði
góð ull, fá bændur miklu meira í sinn hlut.
Að þessu þarf að vinna af öllum kröftum
og má þá gjarnan hafa til hliðsjónar sam-
tök ullarframleiðenda á suðurhveli jarðar,
sem hafa unnið mikið verk fyrir sína með-
limi.“
Verksmiðja b:
„Færi svo að ullargæðin batni verulega
er það að sjálfsögðu mjög mikið atriði fyrir
120
F R E Y R