Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 15.03.1972, Qupperneq 38

Freyr - 15.03.1972, Qupperneq 38
Einstakar sýslur. Sé litið á skiptingu bænda eftir aldri í einstökum sýslum má lesa hana af töflunni. Bændur eru orðnir mjög fáir í Gullbringu og Kjósarsýslum og er meðalaldur þeirra aðeins hærri en á landinu í heild. Af aft- asta dálki töflunnar má sjá mismuninn í sýslunum. Lægstur meðalaldur er í Skaga- firði, 47,58 ár, næst kemur A.-Húnavatns- sýsla, þá N.-Múlasýsla, N.-Þingeyjarsýsla, A.-Skaftafellssýsla, Barðastrandarsýsla og Eyjafjarðarsýsla, en í þessum sýslum öll- um er meðalaldurinn undir fimmtíu árum. í öðrum sýslum eru bændur að meðal- tali 50 ára og eldri og elztir í Y.-Skafta- fellssýslu 54,19 ára. Meðalaldurinn sveiflast því á milli 47,58—54,19 ára eftir sýslum, en að sjálfsögðu er bændatala hverrar sýslu misjöfn og svo er ekki talið í öllum hreppum allra sýslna. Eins og fyrr er sagt ná tölur töflunnar aðeins til 162 hreppa, en þó til meginþorra bændanna. Allar meðaltölur eru vegnar en innan hvers ald- ursflokks, sem telur 5 fæðingarár, eru árs- sveiflur ekki taldar né metnar, enda má gera ráð fyrir, að nákvæmara mat ein- stakra liða hefði sýnt sömu útkomu í svo stórum hópi, sem hér um ræðir. Mun því óhætt að gera ráð fyrir, að tölfræðilegt mat sé tiltölulega öruggt þegar byggt er á þeim forsendum, sem hér eru til grund- vallar lagðar. Um ástæðurnar til mismunar eftir hér- uðum skal ekki rætt hér, þær geta verið ýmsar og breytilegar. Er það tilviljun, að í Skagafirði eru 42 bændur yngri en 30 ára, af 328 bændum samtals? Þar eru 12,8% allra bænda yngri en þrítugir. í ísa- fjarðarsýslum og Strandasýslu eru aðeins 5 undir þrítugsaldri en það er 1,9%. Ein- hverjar líklegar forsendur liggja hér til grundvallar, en hverjar? Það getur verið efni til hugleiðinga. í Vestur-Húnavatnssýslu eru 38 bændur af 129 eldri en 65 ára, það eru rétt 30% og þar eru 15% eldri en sjötugir. í öldungadeild, þ. e. eldri en sjötugir, eru einnig margir í Mýrasýslu, eða 24 af 158 bændum, eða um 15%. Annars sýna töl- urnar, að ekki er óvenjulegt, að enn standa fyrir búum, í hinum ýmsu sýslum, sjötugir bændur og eldri, sem nemur um 10% allra bænda sömu héraða. Með hækkandi meðalaldri manna má segja, að ekki er óeðlilegt þótt aldurshá- mark búenda færist upp á við, en það segir sig sjálft, að ekki eru ástæður góðar við einyrkjabúskap, eins og víðast er um að ræða, þegar heilir hópar í hverri sveit og hverju héraði hafa náð þeim aldri, sem aðrar stéttir telja ekki meðal vinnufærra manna, og eru þar með komnir á eftirlaun og ellilaun. Má vera, að ýmsir umræddra gamalla búenda séu framvegis í eigin hús- um, heima á jörðunum þótt búrekstur sé næsta takmarkaður og aðeins við öldunga hæfi, og lítil ellilaun þyki góð viðbót til einfalds framfæris í eigin húsakosti. Skal samanburður á einstökum sýslum ekki rakinn frekar hér, hver og einn getur reiknað hjá sér eftir dálkum töflunnar. Það er verðugt verkefni til athugunar fyrir aðilja í hverri sveit eða héraði. ❖ * * Hvað má álykta? Sitthvað fleira en hér er rakið má þó hug- leiða út frá þessum tölum. Af tímalengd þeirri, sem hver bóndi stundar búskap, má t. d. álykta hve ör eru ættliðaskipti innan stéttarinnar. Af þeim tölum má svo gera sér í hugarlund hve margir ættu að stunda nám til undirbúnings þess að gerast bænd- ur, og út frá því mætti svo reikna hvort núverandi búnaðarskólar hafa nægilegt rými fyrir verðandi bændur miðað við þá tímalengd, sem þeim er ætlað að sitja á skólabekkjum. Af framangreindum tölum má álykta, að varla er búseta bónda skemmri að meðal- tali en 35 ár og sennilega nær 40. Og séu bændur um 5.000 væri ekki óeðlilegt að 120 útskrifuðust úr búnaðarskóla árlega og að 126 F R E Y R

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.