Freyr - 15.09.1994, Blaðsíða 21
ALLTTIL
RAFHITUNAR!
iumuiiimninm
ifi
#IÍ
ELFA-VORTICE
Einfaldireða tvöfaldir olíufylltir Rafmagnsþilofnar,600-2000w.
rafmagnsofnar350 - 2000w.
Hæð 30, 50 eða 59 cm.
ELFA-VARMEBARONEN
Hitakútar úr ryðfríu stáli. Stærðir Hitatúba / rafketill 12kw, 230v.
30-300 Iftra, útvegum aðrarstærðir 1 fasa. Útvegum aðrar stærðir allt
frá 400-10.000 lítra. að 1200kw.
Elfa rafhitunarbúnaðurinn er þrautreyndur við íslenskar aðstæður.
HAGSTÆTT VERÐ OG GREIÐSLUSKILMALAR.
is'F
Farestveit & Co. hf
Borgartúni 28 - S 622901 og 622900
sú umfram mjók sem nú eru greid-
dar 20 kr. fyrir muni reiknast inn í
beingreislur árið eftir, og eftir sömu
hlutföllum ef hún færi á innlendan
markað.
12. Afgreiðsla reikninga.
Reikningar Stéttarsambands bænda
og Bændahallarinnar fyrir árið 1993
voru bomir undir atkvæði og
samþykktir samhljóða.
13. Málum vísað til nefnda.
Framkvæmdastjóri minnti á verk-
efnaskiptingu milli nefnda og vísaði
fyrirliggjandi tillögum til nefnda.
Einnig tilgreindi hann hvar einstakar
nefndir ættu að starfa.
Fundarhlé var síðan gefið í 20
mínútur þar sem félagsmálanefnd
var enn að stöfum.
Fundur hófst að nýju kl. 22:25.
14. Upplýsingar- og
umrœður um störf
Félagsmálanefndar.
Framsögumaður, Hörður Harð-
arson, kynnti fyrstu tillögu hennar
og lýsti þeim breytingum á fram-
lögðu samkomulagi stjómar SB og
BI sem félagsmálanefnd hefði náð
samkomulagi um, m.a. fjölgun full-
trúa á aðafundi um 3 eða í 39.
Að ósk Félagsmálanefndar skýrði
Guðjón Eyjólfsson endurskoðandi
ákveðnar samantekir um rekstr-
aráætlun SB og BÍ fyrir og eftir
sameiningu.
Að þeim skýringum fengnum hóf-
ust umræður um álit félagsmála-
nefndar.
Til máls tóku:
Birkir Friðbertsson og taldi að
umræða bænda um sameiningar-
málið væri í raun að hefjast. U.þ.b.
68% bænda hefðu samþykkt sam-
einingu í almennu atkvæða-
greiðslunni í vor, en til þess lægju
mjög misjafnar ástæður, m.a. versn-
andi kjör.
Birkir taldi að þrennt þyrfti að
liggja fyrir til þess að hægt væri að
samþykkja fyrirliggjandi drög að
samkomulagi og að þeim vekefnum
hefði ekki verið unnið:
1) Samkomulag um hlutverk bú-
greinasambandanna.
2) Fyrirkomulag stjórnarkjörs.
3) Frágengið skipurit.
Meðan að þessir þættir væru allir í
óvissu væri ekki vitað hvað væri
verið að samþykkja.
Hann lagði til að málinu yrði aftur
vísað til sameiningamefndar og
henni gefinn nokkur tími til að
ganga frá þessum atriðum og leggja
fyrir framhaldsfund endurbætt sam-
komulagsdrög.
Sturlaugur Eyjólfsson sagðist
hafa verið hlynntur sameiningar-
hugmyndinni, en kvaðst ekki geta
samþykkt fyrirliggjandi drög að
samkomulagi.
Hann taldi að enginn sparnaður
kæmi fram nema það sem fælist í
fækkun fulltrúa en í staðinn kæmu
aukin völd fastráðinna starfsmanna.
Þórólfur Sveinsson sagði að kraf-
an um sameiningu hefði komið frá
fjölmörgum bændafundum og und-
irbúningsvinna farið síðan í gang.
Hann taldi að þeir sem yrðu kosnir á
þing þessara nýju samtaka hefðu
fullan rétt til að skipa málum eins og
þeim þætti henta. Hann taldi skoð-
anakönnunina afgerandi en hefði
hún verið andstæð sameiningu hefði
verið hætt við hana, en jáyrði meiri
en tveggja þriðju hluta væri krafa
um sameiningu. Þórólfur taldi því
óþarfa tortryggni að mæla á móti
sameiningu.
Rakti hann síðan ýmsar hugmyn-
18'94 - FREYR 613