Freyr

Årgang

Freyr - 15.09.1994, Side 70

Freyr - 15.09.1994, Side 70
Upptalning fulltrúa breytist í sam- ræmi við það þannig: Búnaðarsamband Vestfjarða ......3 Búnaðarsamband Austurlands ...3 Búnaðarsamband Suðurlands......6 3. gr. Fyrri mgr. 7. greinar orðist svo: I hverju búnaðarfélagi skal, eigi síðar en 1. október 1994, kjósa full- trúa á fulltrúafund búnaðarsam- bands, sbr. 8. grein. Tala fulltrúa fyrir hvert búnaðarfélag fer eftir fjölda félagsmanna þess, þannig að í búnaðarsamböndum, sem kjósa þrjá þingfulltrúa eða færri, skulu félög með 30 félaga eða færri kjósa tvo fulltrúa, félög með 31-60 félaga kjósa þrjá, félög með 61-90 félaga kjósa fjóra pg fjölmennari félög kjósa fimm. í búnaðarsamböndum, sem kjósa fjóra þingfulltrúa eða fleiri, skulu félög með 30 félaga eða færri kjósa einn fulltrúa, félög með 31-60 félaga kjósa tvo, félög með 61-90 félaga kjósa þrjá og fjöl- mennari félög kjósa fjóra. Bú- greinafélög, sem aðild eiga að bún- aðarsambandi, skulu ennfremur og eigi síðar en 1. október 1994 kjósa hvert um sig, einn fulltrúa á fulltrúa- fund búnaðarsambands. Voru atkvæði greidd um hverja grein fyrir sig. Allar voru þær sam- þykktar samhljóða: 1. gr. með 23 atkvæðum, 2. gr. með 20 og 3. gr. með 22. Málið í heild var síðan afgreitt með 22 atkvæðum gegn einu. Mál nr. 2 Tillaga um viöquka við lög Búnaðarfélags Islands. Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 22 samhljóða atkvæðum: Búnaðarþing samþykkir eftirfar- andi viðauka við lög Búnaðarfélags íslands. 1. grein. Búnaðarfélag Islands og Stéttar- samband bænda verði sameinuð í ein heildarsamtök frá og með 1. janúar 1995. Hin nýju heildarsamtök taki frá þeim tíma við öllum eignum og rétt- indum, svo og skuldum og skuld- bindingum Búnaðarfélagsins, hverju nafni sem nefnast. 2. grein. Rekstur Búnaðarfélags íslands og Stéttarsambands bænda verði sam- einaður frá og með 1. janúar 1995. Starfsmenn Búnaðarfélagsins verði sjálfkrafa starfsmenn hinna nýju heildarsamtaka frá þeim tíma. Frá og með þeim tíma verði fjár- reiður og bókhald hinna nýju heild- arsamtaka sameiginlegt, þó þannig, að leiðbeiningarþjónusta og önnur starfsemi, sem greitt er fyrir að hluta eða öllu leyti af opinberu fé, verði skýrt afmörkuð í bókhaldi og með sérgreindan fjárhag. 3. grein. Stjómir Búnaðarfélags íslands og Stéttarsambands bænda skulu, hvor um sig, tilnefna þrjá menn í sam- starfsnefnd. Skal nefndin taka til starfa eigi síðar en 1. október 1994 og annast undirbúning að samein- ingu Búnaðarfélags íslands og Stétt- arsambands bænda í ein heildar- samtök. Frá og með 1. janúar 1995 og þar til fyrsta stjórn samtakanna hefur verið kjörin fara stjómir Búnaðar- félags Islands og Stéttarsambands bænda með stjóm hinna nýju sam- taka, ásamt samstarfsnefnd, eftir því sem stjórnirnar gefa henni umboð til. 4. grein. Fyrsta þing hinna nýju heildar- samtaka, Búnaðarþing, skal halda í marsmánuði 1995. Skal þingið m.a. setja samtökunum samþykktir, af- greiða reikninga Búnaðarfélags ís- lands fyrir árið 1994, samþykkja fyrir hin nýju heildarsamtök fjár- hagsáætlun fyrir árið 1995 og kjósa fyrstu stjóm þeirra. Um skipun þingsins, kosningar til þess og þing- sköp vísast til samkomulags milli stjóma Búnaðarfélags íslands og Stéttarsambands bænda, sem undir- ritað var 19. ágúst 1994 með þeim breytingum, sem gerðar voru á því á Auka-Búnaðarþingi og aðalfundi Stéttarsambands bænda 26. ágúst 1994. 5. grein. Kosning til Búnaðarþings, sem fram átti að fara á tímabilinu 1. maí til 31. október 1994 samkvæmt 9. grein í lögum þessum, fari ekki fram. , 6. gretn. Jafnskjótt og hinum nýju heild- arsamtökum hafa verið settar sam- þykktir falla lög þessi sjálfkrafa úr gildi. Mál nr. 3 Tillaga að ályktun um um- hverfis- og framleiðslumál. Málið afgreitt með eftirfarandi ályktun, sem samþykkt var með 21 samhljóða atkvæði: Auka-Búnaðarþing 1994 ályktar eftirfarandi um umhverfis- og fram- leiðslumál: Gerð verði heildarúttekt á mögu- leikum landbúnaðarins til fram- leiðslu og sölu matvæla á eftirfar- andi forsendum: 1. i. að hann öðlist viðurkenningu sem vistvænn landbúnaður, sem framleiði heilnæmar, náttúrlegar vörur án notkunar óæskilegra aukaefna. ii. að hann framleiði lífræn mat- væli í samræmi við alþjóðlega staðla þar um. Úttektin myndi beinast bæði að hagkvæmustu framleiðsluaðferð- um og markaðssetningu afurð- anna. Hún yrði undirstaða að frekari áætlanagerð um þróun landbúnaðarins á þessu sviði til lengri tíma. 2. Stofnaður verði þróunarsjóður fyrir atbeina hins opinbera í sam- vinnu við hagsmunaaðila. Sjóð- urinn stuðli að vöruþróun og sölu íslenskra búvara undir merkjum vistvænnar / lífrænnar (organic) framleiðslu á inn- lendunt og erlendum mörkuðum. 3. Mótuð verði stefna um að taka upp samfellt framleiðslueftirlit og vöruvöndun innan landbún- aðarins á öllum stigum fram- leiðslu, vinnslu og dreifingar af- urðanna, þannig að tryggt sé, að íslenskur landbúnaður framleiði heilnæmar og vandaðar vörur í sátt við umhverfi sitt. 4. Bændur taki öflugan þátt í land- nýtingar-, gróðurvemdar- og uppgræðslumálum. Þeir hafa alla möguleika á að verða leiðandi afl í þeim efnum og umhverfis- málum almennt starfs síns vegna og vegna náinna tengsla við landið og náttúru þess. Þingið telur við hæfi, að sameinuð samtök bænda hefji störf sín með framkvæmd þessarar ályktunar. 662 FREYR- 18 96

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.