Freyr - 01.03.1998, Síða 19
Þyngdarflokkar
Heimilt er að merkja skrokka í
þyngdarflokka eftir óskum slátur-
leyfishafa eða kaupenda hverju
sinni.
Merking á sláturvörum á
sláturstað
Við gæðamat skal festa merkimiða
tryggilega á hvem skrokk eða hluta
úr skrokk. Á miða skal skráð skýmm
stöfum nafn eða skammstöfun slát-
urleyfishafa og númer sláturhúss þar
sem slátrað er, ásamt tegundarheiti
kjötsins og gæðaflokksmerki. Kjöt-
matsformaður staðfestir gerð og frá-
gang merkimiða og ákveður letur-
gerð. Á merkimiða skal einnig
stimpla sláturdag og ár.
Heimilt er að prenta viðbótarupp-
lýsingar á merkimiðann, t.d. strika-
númer, fallþunga, nafn innleggj-
enda, býlisnúmer og nafn kaupenda.
Heimilt er að nota litamerkingar
til að aðgreina fituflokka, þ.e.; 1 =
ljósgrænn, 2 = ljósblár, 3 = hvítur,
3+ = dökkblár, 4 og 5 = dökkgrænn.
Þegar sláturleyfishafi og heild-
sölufyrirtæki afgreiðir kjöt í heilum
skrokkum, helmingum, fjórðungum
eða niðurbrytjað, er skylt að láta
fylgja hverju stykki eða pakkningu
1. tafla. Holdfylling og vaxtarlag dilkaskrokka.
Stafur Holdfylling Lýsing___________________________________________
E Ágæt Allar útlínur mjög kúptar
Læri: Ágætlega fyllt
Hryggur: Ágætlega breiður og fylltur
Frampartur: Ágætlega fylltur
U Mjög góð Utlínur að mestu kúptar
Læri: Vel fyllt
Hryggur: Vel fylltur
Frampartur: Vel fylltur
R Góð Utlínur að mestu beinar
Læri: Jafnfyllt eða góð
Hryggur: Jafnfylltur
Frampartur: Jafnfylltur
O Sæmileg Útlínur nokkuð íhvolfar
Læri: Lítillega innfallin
Hryggur: Skortir breidd og fyllingu
Frampartur: Smár. Skortir fyllingu
P+ Rýr Útlínur allar íhvolfar
Læri: Innfallin
Hryggur: Smár, innfallinn, með
útistandandi beinum
Frampartur: Smár, flatur, með útistandandi
beinum
P Mjög rýr Útlínur allar íhvolfar eða mjög íhvolfar
Læri: Innfallin eða mjög innfallin
Hryggur: Smár, innfallinn, með
útistandandi beinum
Frampartur: Smár, flatur og með
útistandandi beinum
2. tafla. Fituflokkar lambakjöts Þykkt fitu 11 cm frá miðlínu hryggjar við næstaftasta rif. Fita utan á skrokkum og í brjóstholi. Fituflokkar Utan á skrokk Brjósthol
1 Mjög lítil fita Síðufita <5mm Vottur af fitu eða engin sýnileg fita. Vottur af fitu eða engin sýnileg fita á milli rifja.
2 Lítil fita Sfðufita <8mm Þunnt fitulag þekur hluta skrokksins nema helst á bógum og lærum. Vöðvar sjást greinilega á milli rifja.
3 Eðlileg fita Síðufita <11 mm Skrokkur allur eða hluta þakinn léttri fituhulu. Aðeins meiri fitusöfnun við dindilrótina. Vöðvar sjást enn á milli rifja.
3+ Mikil fita Skrokkur að mestu leyti þakinn Fitusprenging í vöðvum á milli
Síðufita <14 mm fituhulu. rifja.
4 Mjög mikil fita Skrokkur að mestu leyti með þykkri Fitusprenging í vöðvum á milli
Síðufita <18 mm fituhulu, sem getur verið þynnri á bógum og lærum. rifja. Áberandi fita á rifjum.
5 Óhóflega mikil fita Mjög þykk fituhula á öllum skrokk. Vöðvar milli rifja fitusprengdir.
Síðufita>18 mm Greinileg fitusöfnun. Óhófleg fitusöfnun á rifjum.
Leyfileg frávik frá ofangreindum fitumörkum eru ±1 mm eftir fítudreifingu skrokksins eftir nánari fyrirmælum kjötmatsformanns.
Freyr 2/98 - 19