Freyr

Árgangur

Freyr - 15.04.2001, Blaðsíða 15

Freyr - 15.04.2001, Blaðsíða 15
Burðatími 2000 20 15 10 5 0 Mynd 3. Hlutfallsleg skipting á burði kúnna eftir mánuðum árið 2000. föllun blasa við þegar meðaltalstöl- umar fyrir heilsárskýmar eru bom- ar saman bæði þessi ár. Slíkar breytingar hljóta að teljast verulega jákvæðar, jafnhliða verulegri aukn- ingu á mjólkurmagni vegna þess að hið innbyggða neikvæða samband á milli magns og efnahlutfalls í mjólk hefði að öðm jöfnu átt að valda breytingum í öndverða átt við þær sem verða. Rúm 80% af skýrsluhöldurum skrá einnig kjamfóðurgjöf kúnna. Þó að löngu sé ljóst að talsverðrar ónákvæmni gætir í slíkri skráningu, þá sýnir samanburður undangeng- inna ára að breytingar í þessum töl- um virðast mæla ágætlega þær breytingar sem verða í þessum efn- um frá ári til árs. Að meðaltali er kjamfóðurgjöf 790 (748) kg fyrir hverja árskú. Þegar breytingar í kjarnfóðurgjöf og mjólkurmagni eru skoðaðar í samhengi þá virðist þannig hvert viðbótarkíló í kjam- fóðri vera að skila tæpu 1,9 kg af mjólk. Þegar að auki efnamagn þróast á réttan veg þá virðist mega álykta að aukin notkun kjamfóðurs í mjólkurframleiðslunni skýrist af augljósum hagkvæmissjónarmið- um. Hér skal ekki gerð tilraun til að skýra nánar ástæður aukinna afurða á milli ára. Fyrst og fremst endur- spegla þær þrótt og framþróun í ís- lenskri mjólkurframleiðslu. Náttúr- legar aðstæður til framleiðslu og fóðuröflunar hafa óneitanlega verið mjólkurframleiðslunni jákvæðar síðustu ár. Gripirnir hafa meiri framleiðslugetu en áður hefur ver- ið. Niðurstöður sýna að mjólkur- framleiðendur kunna betur en áður að nýta sér slíkar aðstæður. Munur á milli héraða Á mynd 3 er gerð tilraun til að sýna nánar breytingar á milli ára, ásamt samanburði á afurðum á milli héraða. Það gerist nú í fyrsta sinn að meðalafurðir kúnna í heilu héraði fara yfir 5000 kg af mjólk að jafnaði. Þetta gerist í Austur- Skaftafellssýslu þar sem 287,3 árs- kýr ná að skila að meðaltali 5044 kg af mjólk. Þetta hérað heldur því efsta sæti á landinu eins og á síð- asta ári. Þama hefur orðið feikilega mikil aukning á afurðum kúnna á allra síðustu árum, en þama em vafalítið einhveijar allra bestu að- stæður til mjólkurframleiðslu hér á landi, í þessu gróðursæla héraði. Þama er kjamfóðurgjöf kúnna að vonum meiri en í öðrum hémðum eða 1051 kg fyrir hverja kú. Skag- firðingar fylgja fast á eftir í afurð- um en þar em meðalafurðir kúnna árið 2000 4910 kg af mjólk. Það er eftirtektarvert að aukning afurða í þessum héruðum, þar sem afurðir em hvað mestar, er einnig umtals- vert umfram það sem gerist á land- inu að meðaltali. Þegar samanburður á milli ára er skoðaðar nánar kemur í ljós að meðalafurðir lækka á milli ára í örfáum héruðum, þetta á við um Snæfellsnes, Dali og Vestur-Húna- vatnssýslu. Augljósar ástæður meiri munar í afurðaþróun á milli ára eftir héruðum en stundum áður virðast tæplega fyrir hendi. Þegar afurðaþróun síðustu ára er skoðuð nánar þá vekja einnig athygli þær greinilegu breytingar sem orðnir em á milli stærstu mjólkurfram- leiðsluhéraðanna. Nú eru afurðir um 40 kg meiri á Suðurlandi en í Eyjafirði og em það umtalsverðar breytingar frá því sem var fyrir ein- um til tveim áratugum og þarf áreiðanlega að leita langt til baka til að finna mun á þann veg að afurðir séu meiri fyrir sunnan en norðan. Samfara mikilli afurðaaukningu á allra síðustu ámm verður sumur samanburður afurða frá fyrri ámm vart raunhæfur lengur. Fyrir tveim áratugum þótti það mjög góður árangur hjá einstökum félögum, ef það náðust 4000 kg meðalafurðir hjá kúnum í félaginu. Árið 2000 nást þessar meðalafurðir í nær öllu félögum á landinu. Það eru 15 félög sem ná nú því marki að framleiða yfir 5000 kg af mjólk eftir kúna að jafnaði. Þessi félög eru dreifð um allt landið en þriðjung þeirra er samt að finna í Skagafirði. Nf. Auðhumla í Hjaltadal hefur nú aft- ur endurheimt efsta sætið í þessum samanburði. Þar eru 156,7 árskýr sem ná því að mjólka að meðaltali 5422 kg af mjólk, en kjamfóður- notkun er að jafnaði 1177 kg fyrir kúna. Kýrnar þarna í sveit eru löngu landsþekktar fyrir miklar af- urðir en árangur þeirra árið 2000 eru meiri meðalafurðir en áður eru þekktar í einu nautgriparæktarfé- lagi hér á landi. í Nf. Búbót í Ása- hreppi skila 98,7 kýr að meðaltali 5370 kg af mjólk og í Nf. Skútu- staðahrepps, sem lengi hefur búið á eða við toppinn, em meðalafurðir 5261 kg. Afurðahæstu búin Nú er svo komið að meginhluti búa í skýrsluhaldinu, þar sem em fleiri en tíu árskýr, em með meðal- afurðir yfir 4000 kg af mjólk, en til skamms tíma var það viðmiðun sem þótti visst mark að ná í pR€YR 4-5/2001 - 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.