Freyr - 15.04.2001, Blaðsíða 28
>-
Mynd 2. Völsungur 94006. Dætur hans eru mjög getumiklar Mynd 3. Pinkill 94013. Dætur hans eru mjög afkastamiklar
kýr. Mjaltir mjög góðar og skap þeirra mjög gott. Vinsælar kýr. Þær eru stórar en aðeins grófbyggðar. Skap þeirra er
kýr. gott en mjaltir breytilegar.
Frískur 94026. Bröndóttar eða
brandhuppóttar kýr langflestar.
Sterkbyggðar, rýmismiklar kýr.
Góð júgurgerð og gallalítil spena-
gerð. Mjaltir fremur góðar, aðeins
breytileiki í umsögn um skap.
Steinn 94027. Kolóttur litur ein-
kennandi. Bolgrannar kýr með
fremur ójafna yfirlínu. Vel borið
júgur, keilulaga spenar. Breytileg
umsögn um mjaltir og skap.
Prúður 94030. Breytilegur litur.
Bolrými í tæpu meðallagi. Júgur-
gerð ekki nægjanlega sterkleg,
stundum aðeins langir spenar.
Breytileg umsögn um mjaltir og
skap.
Punktur 94032. Brönóttur litur
algengastur hjá kúnum. Bolbygg-
ing ekki veigamikil. Mjög gallalítil
júgur- og spenagerð. Almennt góð
umsögn um mjaltir og skap.
Galsi 94034. Bröndóttan eða
rauðan lit er algengast að sjá hjá
kúnum. Tæplega meðalkýr að
stærð. Júgurgerð gallalítil og áber-
andi góð spenagerð. Góð umsögn
bæði um mjaltir og skap.
Breiði 94037. Kolóttan og rauð-
an lit er oftast að sjá hjá þessum
kúm. Stundum örlítill grófleiki í
byggingu. Júgur vel borið en nokk-
uð um full grófa spenagerð. Um-
sögn um mjaltir og skap í slöku
meðallagi.
Mjaltaathugun
Margir lesendur þekkja vel upp-
byggingu á mjalathuguninni, sem
er spumingalisti þar sem beðið er
um innbyrðist röðun á fimm kúm á
búinu og spurst fyrir um tilgreinda
galla. Þetta form hefur verið í notk-
un í nautgriparæktinni hér á landi á
þriðja áratug. Reynslan og úr-
vinnsla á niðurstöðum hefur sýnt
að þessi aðferð virðist skila tiltölu-
lega heilstæðum afkvæmadómi um
mjaltir dætra ákveðinna nauta. A
það má um leið benda að í flestum
löndum hafa hliðstæðar aðferðir
verið teknar í notkun við mat og
mælingar á mjaltaeiginleikum í
stað mælinga á mjaltatíma kúa,
sem víða voru áður notaðar, en
voru mjög kostnaðarsamar upplýs-
ingar að afla, sem auk þess reynd-
ust hafa talsverða annmarka.
Helstu niðurstöður úr mjaltaat-
huguninni eru sýndar í töflu I. Nið-
urstöður mjaltaathugunarinnar
benda til þess að dætur þessara
nauta séu talsvert betri í mjöltum
en samanburðarkýrnar, sem að
meginhluta eru af tvenns konar
uppruna, dætur reyndra nauta sem
voru í mikilli notkun á sama tíma.
Eins og ætíð reynist þessi seinni
hópur þeirra kúa talsvert breytileg-
Mynd 4. Kaðall 94017. Dætur hans eru mjög afkastamiklar Mynd 5. Frískur 94026. Dætur hans eru góðar mjólkurkýr
kýr. Júgurgerð þeirra er sterkleg, mjaltir góðar og skap og gefa efnarika mjólk. Þær eru sterkbyggðar og með gott
gott. skap en aðeins breytilegar mjaltir.
28 - FR€VR 4-5/2001