Freyr

Årgang

Freyr - 15.04.2001, Side 42

Freyr - 15.04.2001, Side 42
Niðurstöður Á tímabilinu voru skráðir alls 162.530 burðir. í 158.704 tilfell- um voru afdrif kálfsins skráð, þar af sem 4 (fæddist dauður), 5 (fóst- urlát) eða 8 (drapst innan 3 vikna frá fæð.) í 16.510 tilfellum, vanhöld á tíma- bilinu voru því 10,4%. Skiptingu milli ára má sjá í 4. töflu. Hér ber að athuga að árið 2000 var ekki að fullu komið inn er rann- sóknin var gerð, það skýrir hvers vegna færslur þá eru nokkuð færri en árið áður. Hér er ekki um neina skýra þróun að ræða á tímabilinu, vanhöldin virðast vera nokkuð jöfn yfir tímabilið, þó er það umhugsunarefni að á sl. ári fer vanhaldahlutfallið í fyrsta skipti yfir 11 af hundraði. Þróunina má skýra með eftirfarandi jöfnu: Vanhöld eftir burðarnúmeri Burður 1. mynd. Vanhöld kálfa eftir burðarnúmeri móðurinnar. Y = 0,1052x- 199,7 R2 = 0,197 og P = 0,29 Þar sem Y er vanhöld og x er burðarár. Yfirlit yfir vanhöld eftir burðar- númeri gripa má sjá á 1. mynd. Eins og sjá má á 1. mynd skera 1. kálfs kvígumar sig verulega úr, þar sem sjötti hver kálfur kemst ekki lifandi í heiminn, eða drepst innan 3ja vikna frá fæðingu. Líkur á van- höldum eru því 2,5 sinnum meiri við 1. burð en við síðari burði. Það ber að hafa í huga að súlur frá og með 5. burði byggja á tiltölulega fáum mælingum, þannig að skekkjumörk hækka eftir því sem burðamúmer hækkar. Áhrif aldurs við 1. burð má sjá á 2. mynd, aldur er á bilinu 18-36 mánaða. Eins og sjá má eru vanhöldin verulega há þegar kvígumar em mjög ungar, það bendir til þess að um nokkra burðarerfiðleika sé að ræða, þau falla hins vegar nokkuð skarpt er kvígurnar ná auknum þroska og haldast nokkuð jöfn eftir að 2 ára aldri er náð. Vanhöld hjá 1. kálfs kvígum eru nærri tvöfalt tíðari hér en í sam- bærilegum kúakynjum erlendum, 5. tafla. Skipting eftir landsvæðum, 1993-2000 Svæði Vanhöld Vesturland 10,4% Vestfirðir 10,3% Norðurland vestra 9,6% Norðurland eystra 10,3% Austurland 11,3% Suðurland 10,6% Meðaltal 10,4% t.d. í dönskum Jersey kvígum og tæplega 50% tíðari en hjá 1. kálfs kvígum í USA. Sama mynstur virðist því vera á vanhöldum hér á landi og erlendis, 1. kálfs kvíg- urnar eru mun hærri en eldri kýrnar, það er eins og áður segir í fullu samræmi við niðurstöður erlendra rannsókna, það sama gildir um áhrif aldurs við 1. burð á vanhöld. Yfirlit yfir vanhöld kálfa eftir svæðum má sjá í 5. töflu. Eins og sést í töflunni er nokkur munur á milli landsvæða, liggja tvö þeirra, Norðurland vestra og Aust- urland, utan 95% vikmarka. Sá munur, sem er á milli svæða, skýr- ist ekki af mismunandi hlutfalli 1. kálfs kvígna innan þeirra. Á „stóru“ svæðunum, Suðurlandi og Norðurlandi eystra er ekki mark- tækur munur. 42 - pR€VR 4-5/2001

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.