Freyr - 01.09.2003, Page 15
Þátttakan árið 2002
Mynd 1. Hlutfallsleg þátttaka í skýrsluhaldinu eftir héruðum árlð 2002.
ánum fjölgar hlutfallslega mun
meira en skýrsluhöldurum. Það
vekur einnig athygli, þegar þróun
á milli ára er skoðuð, að hlutfalls-
leg fjölgun er miklu meiri hjá vet-
urgömlu ánum en hjá þeim full-
orðnu. Áhrif ijárkaupabúa eru
orðin sáralítil í samaburði við það
sem var fyrir nokkrum árum
þannig að þar er skýringa ekki að
leita. Flest bendir því til að á þess-
um búum hafi verið viss ijölgun á
fé haustið 2001, þó að ekki sé hún
mikil þar sem hún er sjö kindur
hjá hverjum skýrsluhaldara að
meðaltali.
Fjárflestu
SAUÐFJÁRRÆKTARFÉLÖGIN
Sú jákvæða breyting heldur
áfram að margar af stærstu eining-
unum á meðal félaganna auka enn
starfsemi sína, mælt sem fjöldi á
skýrslufærðum ám. Þannig eru nú
23 skráð félög þar sem eru fleiri
en 3000 skýrslufærðar ær. Sú
breyting verður einnig, eins og
spáð var á síðast ári, að Sf. Öx-
firðinga hefur nú verið velt úr sæti
sem ijárflesta félagið í landinu þar
sem það hefúr verið um áratuga
skeið. Það er Sf. Sveinsstaða-
hrepps sem hefur yfírtekið þetta
toppsæti en þar voru skýrslufærð-
ar samtals 7.016 ær en Sf. Öxfírð-
inga er þar skammt á eftir með
6.903 ær. í báðum þessum stóru
félögum er umtalsverð tjölgun á
skýrslufærðum ám frá fyrra ári.
Önnur félög, sem að þessu sinni
ná 3000 kinda strikinu, eru þessi:
Sf. Þistill með 5.905 ær, Sf. Staf-
holtstungna 5.237 ær, Sf. Kol-
beinsstaðahrepps 5.059 ær, Sf.
Reykhólsveitar 4.803 ær, Sf.
Svínavatnshrepps 4.649 ær, Sf.
Vopnfirðinga 4.544 ær, Sf. Vestur-
ísfirðinga 4.391 ær, Sf. Jökull,
Jökuldal, 4.069 ær, Sf. Neisti,
Dalasýslu, 3.963 ær, Sf. Von, Lax-
árdal, 3.839 ær, Sf. Akrahrepps
3.881 ær, Sf. Logi 3.839 ær, Sf.
Staðarhrepps, Hrútafírði, 3.681
ær, Sf. Hálshrepps 3.656 ær, Sf.
Skaftártungu 3.454 ær, Sf. Víðdæ-
linga 3.338 ær, Sf. Sf. Fljótsdals
3.241 ær, Sf. Kirkjubólshrepps
3.184 ær, Sf. Fremri-Torfustaða-
hrepps 3.145 ær, Sf. Langnesinga
3.068 ær og Sf. Ytri-Torfustað-
hrepps 3.009 ær.
Það hlýtur að vera jákvæð þró-
un að starfið færist í stærri eining-
ar. Þær eiga að hafa alla burði til
að halda upp virku fagstarfi. Mörg
lítil félög ná samt góðu heilli
einnig að halda uppi virku og lif-
andi starfí.
Vanhöld á fúllorðnu ánum frá
hausti til sauðburðarbyrjunar voru
ívíð meiri en árið áður eða samtals
2.297 (2.036) ær sem skiptu um
hérvistarstað á þessu tímaskeiði.
Hjá veturgömlu ánum var tilsvar-
andi fjöldi 228 (212). Það er vitað
mál að þessar tölur gefa einhverja
vantalningu á raunverulegum van-
höldum á þessu tímabili, en eftir
því sem aukið hlutfall af skýrslum
er fært í Fjárvísi má samt ætla að
þessar tölur verði réttari með hver-
ju ári. Þessi vanhöld eru þannig
greinilega rúmt prósent af ásettu fé
á hverju hausti. Ær, sem hljóta
þessi örlög, eru að sjálfsögðu ekki
reiknaðar með þegar birtar eru töl-
ur unr frjósemi og afurðir ánna.
Allar slíkar tölur eru miðaðar við
lifandi ær á sauðburði.
Mynd 1 gefur yfírlit um hlut-
fallslega þátttöku í starfseminni í
einstökum sýslum. Mæling á því
er gerð á sama hátt og áður, sem
hlutfall fúllorðinna áa á skýrslu
sem hlutfall af þeim aldursflokki í
héraðinu haustið 2001 samkvæmt
forðagæsluskýrslum. Eins og töl-
umar að framan gefa tilefni til að
álykta þá er þátttakan nokkru
meiri en árið áður og mælist nú
53,9%. Það þarf tæpast að taka
fram að þetta er mesta þátttaka,
sem nokkru sinni hefúr verið í
þessu starfi, sama hvort miðað er
við beinar tölur eða hlutfallstölur.
Breytingar á umfangi starfsins eru
ekki umtalsverðar milli ára í ein-
stökum héruðum. Eins og áður
eru Norður-Þingeyingar þarna
með afgerandi forystu, sem tæpast
verður af þeim tekin, en hlutfallið
er óbreytt frá síðasta ári, 88%. Það
sem er jákvætt er að aukningin er
helst þar sem starfíð var litið fyrir
og ætti því að vera auðveldast að
ná fram breytingum. Nú hefur
orðið það mikil hlutfallsleg aukn-
ing á Reykjanessvæðinu að mögu-
Freyr 7/2003 - 15 |