Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2003, Blaðsíða 25

Freyr - 01.09.2003, Blaðsíða 25
- Guðmundur S. Jónsson, Ærlæk Múlasýslur - Jón Víðir Einarsson, Hvanná og Bragi Björgvinsson, Breiðdalsvík Austu r-Skaftafellssýsla - Guðfinna Benediktsdóttir, Vola- seli Vestur-Skaftafellssýsla - Jón Jónsson, Prestbakka Rangárvallasýsla - Þorsteinn Oddsson, Hellu Arnessýsla austan vatna - Amór Karlsson, Biskupstungum Vestmannaeyjar - Birgir Sigurjónsson, Vestmanna- eyjum. I október mun ég senda dreifi- bréf til markavarða með ábend- ingum og leiðbeiningum um söfn- un marka og útgáfu markaskráa 2004. Gert er ráð fyrir að þeir safni mörkum til áramóta þannig að unnt verði að vinna að tölvu- setningu og öðrum undirbúningi undir prentun á fyrstu mánuðum næsta árs. Skrámar komi síðan út vorið og sumarið 2004 og dreif- ingu verði alls staðar lokið fyrir réttir það haust. Sauðijárbændur og aðrir ijáreigendur em beðnir að hafa þetta í huga og fylgjast með tilkynningum frá markavörðum og mér í héraðsfréttablöðum, Bændablaðinu og víðar nú í vetr- arbyrjun. Öll mörk, sem á að nota áfram, þarf að endurskrá svo og ný mörk og eigendaskipti eða breytingar á búsetu. Nú er búið að útrýma öllum óleyfilegum sam- merkingum, eftir því sem best er vitað, og þess verður gætt að ekki verði til nýjar. Markaverðir gefa upplýsingar og aðstoða við upp- töku nýrra marka. Einnig geta þeir ráðstafað svokölluðum marka- varðamörkum sem eru laus á hverjum tíma. Fækkum soramörkum Um árabil hefur verið unnið gegn miklum særingarmörkum, sem í mörgum tilvikum má rétti- lega kalla soramörk. Reyndar eru sum „stóru“ mörkin mjög greini- leg á eyra ef þau eru rétt og vel mörkuð en oft má að skaðlausu fækka benjum. Sérstaklega bið ég þá sem eru að taka upp ný mörk að huga að þessu, skoða vel við- komandi markaskrá og helst landsmarkaskrána líka og velta upp ýmsum möguleikum. Með fækkun marka verður auðveldara að finna „lítil“ mörk og jafnvel að breyta eldri mörkum með því að fækka benjum. Athugið hvort hægt er að sleppa einhverjum undirbenjum, t.d. bitum og Qöðr- um, og hugsanlega yfirmörkum, jafnvel að vera með annað eyrað alheilt. Best er að særa lömbin sem minnst því að síðan bætist við gat fyrir plötumerki, a.m.k. í öllu skýrslufærðu fé og þar með í öllu fé á búum með gæðastýringu. Reyndar er líklegt að skylt verði að plötumerkja allt fé í landinu innan fárra ára. Þess ber að geta að áfram verður notað sama bæj- amúmerakerfi þrátt fyrir samein- ingu sveitarfélaga, og litakerfi eft- ir vamarsvæðum, enda til mikils hagræðis við fjárrag og auðkenn- ingu fjár, allt til slátmnar. Skylt að eyrnamarka lömbin Við hérlendar aðstæður, þar sem meiri eða minni samgangur er á fé frá ýmsum eigendum, gegna eymamörk veigamiklu hlutverki. Það ákvæði afréttarlaga að lömb skuli eymamarka fyrir lok 12. viku sumars er enn í fullu gildi. Þótt einnig séu notuð önnur mörk, svo sem plötumerki í eym og brennimörk á hom, er óheimilt að sleppa eymamörkun. Þess em því miður dæmi að þessi gmndvallar- regla sé brotin af ásettu ráði. Slíkt er fráleitt því að eymamörkun varðar ekki aðeins eignarrétt held- ur auðveldar hún eftirlit með sauð- fjársjúkdómum og er veigamikill liður í upprunamerkingu vegna gæðastýringar. I nýlegri reglugerð um gæðastýrða sauðijárfram- leiðslu er auk einstaklingsmerk- ingar með plötumerki tekið skýrt fram að allt sauðfé skuli eyma- merkt eiganda sínum samkvæmt ákvæðum afréttarlaga. Stöku ær sleppa með ómarkað og alltaf fæð- ist eitthvað af sumrungum þannig að ekki er óeðlilegt þótt einhverjir ómerkingar komi ffam í skilarétt- um á haustin. Að hluta ganga þessi lömb út, þannig að mæður helga sér þau, en venjulega gengur eitthvað af. Enn þarf því að senda töluvert af slíkum lömbum í slátr- un sem óskilafé. Eg tel mjög brýnt að markaskoðunarmenn í slátur- húsum fylgist vel með þessum málum og láti það ekki óátalið ef verið er að senda heila hópa af ómörkuðum lömbum frá ákveðn- um bændum í slátrun, jafnvel þótt þau séu plötumerkt. Sé það lög- brot liðið eykst mjög hætta á mis- ferli. Fækkun sláturhúsa og flutn- ingur sláturfjár um langan veg á milli héraða krefst enn vandaðri markaskoðunar og eftirlits með því fé sent er að koma inn í húsin og þar má ekki slaka neitt á kröf- um um auðkenningu fjárins. Ábendingar Ég mun nú sem fyrr mæla með því að allar fjallskilasamþykktir verði birtar í markaskrám. Þar eru þær aðgengilegri en í Stjómartíð- indum fyrir þorra bænda. Því vil ég koma þeirri ábendingu á fram- færi að hraðað verði endurskoðun Qallskilasamþykkta þar sem henn- ar er þörf til þess að hægt sé að birta nýja útgáfu af þeim í marka- skrám 2004. Ferlið tekur a.m.k. nokkra mánuði og ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Landbúnað- arráðuneytið þarf að fá allar fjallskilasamþykktir til staðfest- Frh. á bls. 54 Freyr 7/2003 - 25 |
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.