Freyr - 01.09.2003, Blaðsíða 45
Einkunnir sæðingarstöðva-
hrútanna haustið 2003
Með þessari grein er
birt hin árlega tafla
um nýjustu upplýs-
ingar um hrúta á sæðingar-
stöðvunum sem er að fínna í
uppgjöri fjárræktarfélaganna.
Rétt er að gera aðeins grein íyr-
ir hvemig flokka má upplýsing-
amar í töflunni. Þar eiga að vera
upplýsingar fyrir alla hrúta á sæð-
ingarstöðvunum sem áttu 100
dætur eða fleiri í uppgjöri haustið
2002. Reikna má með talsverðum
áhrifum frá öllum slíkum hrútum í
ræktunarstarfmu þó að nokkur ár
séu frá því að notkun þeirra elstu
lauk. Auk þess eiga að vera upp-
lýsingar fyrir alla hrúta sem not-
aðir vom á stöðvunum síðustu tvo
vetur. Þessar upplýsingar eru að-
eins um afkvæmi -þessara hrúta
sem eru tilkomin við sæðingar
nema þær upplýsingar sem eru í
sviga. Það em upplýsingar sem
fengnar em úr heimafélagi hrúts-
ins. Þetta á við um upplýsingar
um dætur hrúta sem vom sitt ann-
að ár á stöð. Fyrir hrúta, sem vom
fyrsta skipti í notkun á stöð síðast-
liðinn vetur, eru slíkar upplýsing-
ar aðeins fengnar á þann hátt.
Birtar eru annars vegar ein-
kunnir um lömb undan hrútunum,
sem eru í raun fyrst og fremst
orðnar fallþungaeinkunnir. Að
baki þeim einkunnum liggja upp-
lýsingar fyrir öll sláturlömb, sem
komið hafa á skýrslu undan hrútn-
um, tilkomin við sæðingu, nema
fyrir örfáa fádæma mikið notaða
hrúta vegna þess að hætt er að
safna þessum upplýsingum fyrir
hrút þegar komnar em upplýsing-
ar fyrir um 2000 afkvæmi hans.
Flins vegar eru dætraeinkunnir
hrútanna. í þeirri einkunn vegur
frjósemi dætranna mest þegar
fjöldi dætra er orðinn jafn mikill
og raunin er um marga þessara
hnita. Niðurstöðumar eru aðeins
byggðar á upplýsingum um dætur
stöðvahrútanna frá haustinu 2002,
nema ef um er að ræða upplýsing-
ar úr heimafélagi þá eru það upp-
lýsingar fyrir öll afurðaár dætra
þeirra sem fram hafa komið í
skýrsluhaldi í félaginu þar sem
hrúturinn var notaður.
Þegar einkunnir hrútanna fyrir
sláturlömb em skoðaðar sést að
sáralítill munur er yfirleitt á milli
þessara hrúta. Þetta er raunar í
samræmi við það sem ætíð hefúr
verið. Að þessu sinni em samt ör-
fáir hrútar að sýna meiri frávik en
yfírleitt hefúr áður verið að sjá í
þessum einkunnum. Þetta em koll-
óttir hrútar, einkum þeir Sónar 97-
860 og Boli 99-874, enda vöktu
lömb undan þeim athygli liaustið
2002 fyrir feikilega góðan þoska.
Þá vekur það athygli að hrútahóp-
urinn, sem er að gefa að jafnaði
þroskaminnstu lömbin, virðast
vera mórauðu hrútamir sem hafa
verið á stöðvunum síðustu árin.
Dætraeinkunnir hrútanna
HAFA MIKIÐ SPÁSAGNARGILDI
Reynslan hefur sýnt að það eru
niðurstöður dætraeinkunnar hrút-
anna, sem hafa mikið spásagnar-
Dalur 93-878. Víðtæk reynsla af afkvæmum hans hefur sýnt að hann er
einn öflugasti kynbótahrútur hér á landi. (Ljosm. Lárus G. Birgisson).
Freyr 7/2003 - 45 |