Freyr - 01.09.2003, Blaðsíða 19
Tafla 2. Bú með mest kjötmagn haustið 2002 eftir skýrslufærða á
Nafn Heimili Tala Lömb til Kg
áa nytja pr./á
Eiríkur Helgason Ytra-Gili 14 2,43 52,3
Þorvaldur Jónsson Innri-Skeljabrekku 10 2,00 43,8
Hörður Pálsson Hömrum 23 2,04 42,8
Steingerður Jósavinsdóttir Brakanda 8 2,00 41,4
Ólafur og Hulda , Reykjum 10 2,00 41,2
Valdimar Sigmarsson Sólheimum 11 2,09 40,2
I Jóhann Tryggvason Vöglum 6 1,83 40,1
mælalaust verið í fararbroddi
þeirra sem hafa verið að takast á
við þessa ögrun í ræktunarstarfmu
og árangur þeirra er óumdeilan-
lega verulegur.
Afurðahæstu búin
Hvað varðar einstaka framleið-
enda þá eru margir þeirra að ná
mjög eítirtektarverðum árangri.
Þar hefur ætíð verið venjan að
skoða það út ffá ffamleiðslumagni
eftir hverja á. Það ber að sjálf-
sögðu að gera með þeim fyrirvör-
um sem að ffaman eru nefndir um
framleiðslugæði, en mörg búanna,
sem þar eru ofarlega á lista, eru
einnig vel þekkt af listum um
framleiðslugæði út frá kjötmati
sem fjallað er á öðrum stað í þessu
blaði.
Árið 2002 náðu 195 skýrslu-
haldarar því marki að framleiða
30 kg af dilkakjöti eða meira eftir
hverja á. Þrátt fyrir það að munur
í meðalafurðum sé lítill á milli ár-
anna 2001 og 2002 þá er hann
nægjanlegur til þess að þessi hóp-
ur er snöggtum minni haustið
2002 en árið áður. í töflu 2 er gef-
ið yfírlit um allra afúrðamestu bú-
in á þessum lista. Allt eru þetta
litlar hjarðir þar sem frjósemi
ánna er feikilega mikil. Efsta sæt-
ið skipar Eiríkur Helgason á Ytra-
Gili í Eyjafjarðarsveit en 14 ær
hans ffamleiða að meðaltali 52,3
kg af dilkakjöti, en frjósemi hjá
ánum í þessari hjörð eru fáheyrð
þar sem 2,43 lömb eru til nytja að
jafnaði eftir hverja þeirra.
I hópi búa með 100 ær eða fleiri
skýrslufærðar ná 204 að þessu
sinni 28 kg framleiðslumarkinu.
Líkt og í 30 kg búunum er þessi
hópur talsvert minni haustið 2002
en 2001 sem skýrist af þeim mun,
þó að lítill sé, sem er á fallþunga
og frjósemi á milli ára, þannig að
hópurinn, sem er rétt við mörkin,
er stór að þessu sinni.
Þau tvö bú, sem undanfarinn
áratug hafa nokkuð bróðurlega
skipt með sér toppsætinu á þess-
um lista, ef undan er skilið haust-
ið 2001 þegar þau bæði þokuðu
örlítið niður hann, eru aftur búin
að ná sinni rótgrónu stöðu. Þetta
eru að sjálfsögðu bú Indriða og
Lóu á Skjaldfönn og hjá Hjálmari
og Guðlaugu á Bergsstöðum á
Vatnsnesi. Skýrslufærðar ær á
Skjaldfönn eru 238 og þær skila
að meðaltali 1,71 lambi til nytja
að hausti. Þroski Skjaldfannar-
lambanna er löngu landsþekktur
og reiknað framleiðslumagn eftir
hverja á var 36,1 kg haustið 2002.
Á Bergsstöðum voru æmar 324
og frjósemi þeirra frábær því að
1,97 lömb fást til nytja eftir
hverja þeirra. Þó að vænleiki
lambanna sé feikilega mikill þá er
hann talsvert minni en á Skjald-
fönn en eftir ána er framleiðslu-
magnið árið 2002 36,0 kg að jafn-
aði. Líkt og árið áður er í þriðja
sæti Tryggvi Eggertsson í Gröf
með 180 ær sem skiluðu að með-
altali 35,8 kg af dilkakjöti. í töflu
3 er yfírlit um þau 18 bú úr þess-
um flokki sem ná 33 kg markinu
haustið 2002. Þama er víst fáa ný-
græðinga að sjá heldur eru þetta
Tafla 3. Bú með mest kjötmagn eftir skýrslufærða á haustið 2002, þar sem 100 eða fleiri ær voru skýrslu- færðar
Nafn Heimili Tala áa Lömb til nytja Kg pr./á
Indriði og Lóa Skjaldfönn 238 1,71 36,1
Hjálmar og Guðlaug Bergsstöðum 324 1,97 36,0
Tryggvi Eggertsson Gröf 180 1,89 35,8
Gunnar og Doris Búðarnesi 179 1,80 35,1
Ellert Gunnlaugsson Sauðá 357 1,93 35,0
Félagsbúið Lundi 313 1,76 35,0
Heimir Ágústsson Sauðadalsá 338 1,92 34,0
Reynir og Ólöf Hafnardal 266 1,81 33,7
Arnar og Kjartan Brimnesi 110 1,84 33,6
Aðalsteinn Jónsson Klausturseli 269 1,99 33,6
Vernharður Vilhjálmsson Möðrudal 188 1,86 33,6
Þorsteinn Kristjánsson Jökulsá 228 1,75 33,6
Ragnheiður Jónsdóttir Gestsstöðum 118 1,88 33,4
Hulda Snorradóttir Dagverðartungu 114 1,81 33,4
Björn og Guðbrandur Smáhömrum 267 1,85 33,3
Elin Anna og Ari Guðmundur Bergsstöðum 278 1,83 33,2
Félagsbúið Þríhyrningi 115 1,81 33,0
Árni Halldórsson Garði 205 1,96 33,0
Freyr 7/2003 -19 |