Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2003, Blaðsíða 18

Freyr - 01.09.2003, Blaðsíða 18
Mynd 4. Reiknaó magn dilkakjöts eftir hverja fullorðna á á skýrslu haustið 2002. 2000 algert metár um afurðir í sögu fjárræktarfélaganna og haustið 2001 var vænleiki dilka einnig mjög góður. Utkoman frá haustinu 2002 er sjónarmun lakari en árið áður í þessum efnum. Reiknað magn af dilkakjöti eft- ir hverja tvílembu var 31,3 kg (31,5). Eftir einlembuna fengust að jafnaði 17,6 kg (17,7). Hjá hverri á, sem skilaði lambi til nytja að hausti, var reiknuð fram- leiðsla 28,1 kg (28,4) og eftir hverja á, sem lifandi var í byrjun sauðburðar, var framleiðslumagn- ið 26,2 kg (26,5). Ástæða er til að vekja á því athygli að allar tölur um kjötmagn í fjárræktarfélögun- um eru enn miðaðar vió blautvigt þó að langsamlega flest sláturhús í landinu skili bændum þessum upplýsingum sem þurrvigt. Þessi framsetning leyfir aftur á móti samanburð á niðurstöðum síðustu tvo áratugi sem þessi grunnur hef- ur verið notaður. Rúmlega 151 þúsund lömb hafa upplýsingar bæði um þunga og fæti og fallþunga sem gerir mögu- legt að reikna kjöthlutfall þeirra. Þær upplýsingar eru umreiknaðar í uppgjörinu miðað við tvilemb- ingshrúta og er það þannig reikn- að 40,1% (40,4) sem er ívíð lægra en árið áður sem er í samræmi við örlítið minni vænleika lambanna. Mynd 4 sýnir hvert var reiknað framleiðslumagn í dilkakjöti eftir hverja á í einstökum sýslum haustið 2002. Myndin, sem við blasir, er í meginatriðum lík þeirri sem var haustið 2001. Eins og mörg undanfarin ár tróna Stranda- menn þama á toppinum með 28,2 kg kjöts eftir ána. Þetta er að sjálf- sögðu frábær árangur þó að fram- leiðslan sé nær einu kg minni en árið áður. Næstir þeim og aðeins þrepi lægra koma nágrannar þeirra í Vestur-Húnavatnssýslu og Eyfírðingar með 27,9 kg kjöts eft- ir hverja á. Þetta er þau sömu þrjú héruð og vom á toppi með fram- leiðslu haustið 2001. Þegar árin eru borin saman í einstökum hér- uðum kemur í ljós að afurðir eru áþekkar eða ívíð meiri á Vestur- landi, á Mið-Norðurlandi (Aust- ur-Húnavatnssýsla, Skagaljörður) eru þær nokkru minni og það sama er uppi á teningnum í Þing- eyjarsýslu. Framleiðslan er mjög áþekk bæði árin i Múlasýslunum; ívíð meiri í Skaftafellssýslunum, snöggtum minni í Rangárvalla- sýslu en meiri í Árnessýslu. 1 meginatriðum endurspegla þessar breytingar á milli ára sveiflumar á milli ára í meðalfallþunga lamba í einstökum héruðum því að eins og áður greinir voru sveiflumar í frjósemi hverfandi litlar milli ára. Það em samtals 10 fjárræktarfé- lög þar sem framleiðsla er 30 kg af dilkakjöti eða meira eftir hverja skýrslufærða á. Mestar eru þær í Sf. Mjóafjarðar og Seyðisfjarðar en þar eru 139 ær skýrslufærðar á tveimur búum og skila þær að jafnaði 34,8 kg af dilkakjöti. Mörg af þeim félögum, sem sýna þessar gríðarmiklu afurðir, eru með fremur fátt fé skýrslufært þó að árangur þeima sé jafn glæsileg- ur fyrir því. Ástæða er hins vegar til að vekja athygli á tveimur mjög stómm félögum sem ná að fylla þennan hóp. í Sf. Kirkjuhvamms- hrepps em nær 2000 skýrslufærð- ar ær sem skila 32,9 kg af dilka- kjöti að jafnaði. Áður hafði komið fram að frjósemi ánna í þessu fé- lagi var árið 2002 með afbrigðum mikil og er þessi árangur frábær. I Sf. Skriðuhrepps eru skýrslufærð- ar tæplega 1200 ær og þar var vænleiki dilka haustið 2002 einn- ig afar mikill og var framleiðsla eftir hverja skýrslufærða á þar 32,9 kg. Það þarf vart að segja nokkmm það lengur að tölur um fram- leiðslumagn einar og sér segja ekki allt. Hins vegar verður aldrei rekinn arðbær fjárbúskapur nema framleiðni sé góð og mælikvarði á hana er frjósemi og framleiðslu- magn á hverja einingu (á). Til við- bótar er mikilvægt að gæði fram- leiðslunnar séu fyrir hendi. Við mikinn vænleika verður það lífs- spursmál að búa við íjárstofn sem hefur hæfileika til mikillar vöðva- söfnunar og lítillar fitusöfnunar. Bændur í Sf. Kirkjuhvamms- hrepps hafa margir um árabil tví- 118-Freyr 7/2003
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.