Freyr - 01.09.2003, Blaðsíða 58
Alyktanir aðalfundar
Landssamtaka sauðfjár-
bænda 2003
Aðalfundur Landssam-
taka sauðfjárbænda
var haldinn á Hrafna-
gili í Eyjafirði 24. og 25. júní
sl. Hér á eftir fara hclstu
ályktanir fundarins, en fund-
argerð, ásamt öllum ályktun-
um fundarins, er að finna á
heimasíðu bændasamtakanna,
bondi.is
Endurskoðun búnaðargjalds
„Aðalfundur Landssamtaka
sauðíjárbænda 2003 beinir því til
stjórnar félagsins og búnaðar-
þingsfulltrúa að beita sér fyrir
endurskoðun búnaðargjalds með
það í huga að hluti þess Ijármagns
sem rennur til Lánasjóðs landbún-
aðarins verði nýttur til markaðs-
etningar á dilkakjöti".
Samþykkt með 23 atkvœðum
gegn 3.
Endurskoðun
Á SAUÐFJÁRSAMNINGI
„Aðalfundur Landssamtaka
sauðijárbænda, 2003 gagnrýnir
þá málsmeðferð og afgreiðslu
sem tillögur aðalfundar LS 2002
um endurskoðun á sauðfjársamn-
ingi fengu. Jafnframt beinir
fundurinn því til stjórnar sarntak-
anna að fylgjast grannt með gangi
WTO samninga og framkvæmd
gæðastýringar, í ljósi þess að
óska eftir endurskoðun á sauð-
íjársamningnum telji hún ástæðu
til“.
Samþykkt með 19 atkvœðum
gegn 8.
Veggirðingar og
MERKINGAR Á VEGUM
„Aðalfundur Landssamtaka
sauðljárbænda 2003 beinir því til
sveitarfélaga, Vegagerðarinnar og
annarra hlutaðeigandi aðila að gera
með sér samninga um veggirðing-
ar og merkingar á vegum í sam-
ræmi við reglur um lausagöngu
sauðfjár á mismunandi svæðum.
Sett verði upp aðgerðaáætlun um
þessa hluti og unnið eftir henni“.
Greinargerð:
„Árlega verður verulegt tjón þar
sem ekið er á sauðfé á vegum
landsins. Þetta tjón mætti minnka
verulega með samræmdari vinnu-
brögðum varðandi veggirðingar
sem og merkingar á vegum þar
sem veggirðingar eru enn ekki
fyrir hendi eða lélegar. Víða
mætti taka betur á þessum málum
með auknu samstarfi Vegagerðar,
sveitarfélaga, bænda og annarra
hlutaðeigandi“.
JÁKVÆÐARI ÍMYND SAUÐFJÁR-
RÆKTAR OG SVEITALÍFS
„Aðalfúndur Landssamtaka
sauðljárbænda 2003 beinir því til
stjómar LS að unnið verði skipu-
lega að því að skapa sauðljárrækt,
Ijárbændum og sveitalífi jákvæð-
ari ímynd í hugum landsmanna“.
Forfallaþjónusta
FYRIR SAUÐFJÁRBÆNDUR
„Aðalfundur Landssamtaka
sauðljárbænda 2003 beinir því til
stjómar LS að kanna hvort nýta
megi hluta tryggingargjalds til að
íjármagna forfallaþjónustu fyrir
sauðljárbændur“.
Rannsóknir og eftirlit með
SMITLEIÐUM RIÐUVEIKI
„Aðalfundur Landssamtaka
sauðíjárbænda 2003 beinir því til
Yfirdýralæknis og Sauðljárveiki-
vama að efla rannsóknir og eftirlit
með öllum hugsanlegum smitleið-
um riðuveiki".
Endurskoðun
Á SAMÞYKKTUM LS
„Aðalfundur Landssamtaka
sauðljárbænda, 2003 samþykkir
að stjóm LS skipi þriggja manna
nefnd til að endurskoða sam-
þykktir LS sem kynntar verði á
formannafundi og lagðar fyrir
næsta aðalfund“.
Mistök við notkun
Á SÆÐISVÖKVA VERÐI BÆTT
„Aðalfundur Landssamtaka
sauðfjárbænda 2003 harmar þau
mistök sem voru gerð við notkun
á nýjum sæðisvökva frá Sauðfjár-
sæðingastöð Suðurlands á síðasta
vetri og beinir því til stjómar LS
að fylgja því eftir að bændum
verði bættur sá skaði er af hlaust“.
Samþykkt með meginþorra at-
kvœða gegn 4.
Samræming á kjötmati
MILLI SLÁTURHÚSA
„Aðalfundur Landssamtaka
sauðfjárbænda 2003 beinir því til
yfirkjötmats ríkisins að áfram
| 58 - Freyr 7/2003