Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2003, Blaðsíða 21

Freyr - 01.09.2003, Blaðsíða 21
Starfsemi sauðfjársæð- ingarstöðvanna árið 2002 essi grein gefur hefð- bundið yfirlit um starf- semi sauðfjársæðinga- stöðvanna í desember 2002. Áfram hélt kraftmikil starfsemi á þessu sviði og þátttaka í starfinu sló öll eldri met. Starf- semin varð hins vegar um leið fyrir vissum áföllum sem vikið verður að síðar í greininni. Þessi starfsemi hefur með hverju ári orðið veigameiri hlekk- ur í framkvæmd sauófjárkynbóta- starfs í landinu. Undirstaða þess er að á stöðvunum sé á hverjum tíma að finna blómann úr stofni kynbótahrúta í landinu. Með skipulegu vali hrútanna á síðustu árum hafa tvímælalaust verið stig- in skref í þá átt. Á það er hins veg- ar rétt að benda að mjög stór svæði landsins eru lokuð stöðv- unum fyrir hrútatöku inn á þær. Talsvert af þessu eru svæði þar sem fyrir um áratug fóru ffam stórfelld fjárskipti vegna útrým- ingar á riðuveiki. Með markvissu ræktunarstarfi hjá fjölda fjár- bænda á þessum svæðum fer hins vegar þar víða að verða að fmna athyglisverða kynbótagripi. Það væri því ræktunarstarfi í landinu tvímælalaust til framdráttar ef á næstu árum yrði mögulegt að lyfta því helsi af sumum þessum rækt- unarbúum sem þar er í dag. Sæðingamar eru með siaukinni þátttöku á síðustu árum að breyt- ast úr því að vera þáttur í reglu- legri endumýjun í hrútastofni á búinu yfir í það að bændur stefna að því að talsvert hátt hlutfall end- umýjunar í ærstofninum sé einnig tilkomið með sæðingum. Ekkert vafamál er að þessar breytingar munu stuðla að enn meiri ræktun- arárangri í sauðfjárræktinni á næstu árum en hingað til. Jafn- hliða hefur stórlega dregið úr notkun samstillinga ánna enda hafa niðurstöður til fjölda ára sýnt lakara árangur úr sæðingum þegar samstillingar em notaðar en þegar sætt er ósamstillt. Því má ætla að notkun samstillinganna heyri meira sögunni til nema í þeim til- vikum þar sem þær eiga fullan rétt á sér eins og í litlum hjörðum og þegar verið er að sækjast eftir ein- hverju mjög sérstöku eins og for- ystuhrútum eða mislitum hrútum. Veturinn 2002 voru stöðvar starfræktar í Laugardælum og á Möðruvöllum. Fleiri hrútar voru á stöðvunum en nokkru sinni áður eða samtals 48 hrútar, jafnmargir á hvorri stöð. I Laugardælum var staðfest gamaveiki í einni af ánum á stöðinni seint í nóvember og í aðgerðum til að hreinsa stöðina voru felldir þrír hrútar. Hliðstætt tilvik kom fyrir á stöðinni á Möðruvöllum fyrir rúmum tveim- ur áratugum eins og einhverjir muna ef til vill. Þessi atburður gerir að litlu allar hugmyndir um að sameina rekstur sæðingastarf- seminnar á eina stöð, þar sem þetta óhapp sýnir vel þá miklu áhættu sem með því væri tekin fyrir þessa starfsemi gagnvart ófyrirséðum atvikum eins og þessu. Hrútakosturinn í Laugardælum skiptist þannig að 16 hymdir hrút- ar vom þar og sjö kollóttir, auk forystuhrúts. Á Möðruvöllum vom 15 hymdir hrútar, átta koll- óttir og þar var einnig einn for- ystuhrútur. Endumýjun í hrútakosti var um- talsverð eins og verið hefúr und- anfarin ár. Af hrútum, sem voru á stöðvunum í desember 2001, vom 13 sem höfðu fallið, af margvís- legum ástæðum. Nýliðun var hins vegar meiri en nokkru sinni eða samtals 21 hrútur. Hrútamir sem horfnir vom af sjónarsviðinu voru þessir: Sunni 96-830, Teigur 96- 862, Askur 97-835, Fengur 97- 863, Spónn 98-849, Prestur 94- 823, Mjaldur 93-985, Moli 93- 986, Bjálfi 95-802, Mölur 95-812, Búri 94-806, Bassi 95-821 og Biskup 96-822. Nýir hrútar á stöð Nýliðamir í hrútakostinum eru taldir upp hér á eftir um leið og gerð er grein fyrir uppmna þeirra, en um fyllri upplýsingar um þessa hrúta er vísað í stórglæsilega hrútaskrá stöðvanna. Baukur 98-886 kom frá Borgar- felli í Skaftártungu. Hann er sonur Búts 93-982 en móðir hans, Una 94-406, er undan Funa 93-426. Baukur er hvítur og hymdur og var á stöð í Laugardælum. Víðir 98-887 var fenginn frá Freyr 7/2003 - 21 |
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.