Freyr

Volume

Freyr - 01.09.2003, Page 17

Freyr - 01.09.2003, Page 17
1,7 lömb til nytja að hausti. Þetta eru þau sömu héruð þar sem frjó- semi hefur verið mest um langt árabil þó að innbyrðist röð þeirra sé nokkuð önnur en árið áður. Þó að munur í frjósemi ánna á milli héraði hafi farið verulega minnk- andi á síðari árum er hann en tals- verður. Þegar það munar nokkuð yfir 0,1 lambi til nytja að hausti á milli héraða er það mikill munur. Það sem ef til vill vekur athygli er að þessi munur kemur ekki hvað síst fram í mun á höldum lamba. Það er greinilegt þegar héraðam- eðaltölin eru skoðuð að ekkert samband er á milli vanhalda og fjölda fæddra lamba. Þess vegna sýnist full þörf að huga að því að reyna að bæta lambahöld þar sem vanhöld virðast orðið mest. Þetta á ekki hvað síst við víða á Vestur- og Suðurlandi. Góð frjósemi er alger undir- stöðuþáttur til að mögulegt sé að reka arðsamt sauðfjárbú. Enginn einn eiginleiki hefur jafn afger- andi áhrif á hagkvæmni fram- leiðslunnar og frjósemi ánna. Ef til vill er full þörf á að veita þess- um þætti enn meiri athygli en víða hefur verið gert á síðustu ár- um. Frjósemin mótast bæði af fjárstofninum og meðferð hans. Hugsanlega hefur á síðasta áratug verið óþarflega mikið slakað á frjóseminni sem eiginleika í rækt- unarstarfmu og full ástæða til að skerpa þar athyglina að nýju. Eins og athygli hefur verið vakin á þá virðist sem hlutfall af geldum ám fari ef eitthvað er vaxandi og er það þáttur sem full ástæða er til að horfa til. Eins og vikið er að hér að framan eru vanhöld lamba einnig á einstaka stöðum of mikil þó að í heildina sé ástand í þeim efnum gott og mjög gott í saman- burði við sauðijárrækt í mörgum nálægum löndum. A síðustu dög- um hef ég verið að gera upp mik- inn fjölda af skýrslum frá vorinu 2003. Þar tel ég mig hafa séð allt- of mörg dæmi þess að frjósemi hjá tvævetlum er alls ekki viðun- andi. A búum þar sem ekki eru að fæðast að jafnaði nema um eða innan við 1,6 lömb eftir tvævetl- una, þar sem hefur verið góð frjó- semi í fé, hefur eitthvað farið úr- skeiðis. Ef munur á fjölda fæddra lamba hjá tvævetlunum og eldri ánum fer yfir 0,15 lömb verða menn að huga að því hvort ein- hverja þætti í meðferð vetur- gömlu ánna megi ekki bæta. Slíkt fall í frjósemi hjá þessum hópi áa hlýtur að hafa veruleg áhrif á af- komu fjárbúskapar á þessum bú- um. I töflu 1 má sjá að feikilegur munur er á milli einstakra fjár- ræktarfélaga í frjósemi ánna. í ör- fáu félögum, (Sf. Hrafnagils- hrepps, Sf. Frey og Sf. Norðfjarð- ar), þar sem frekar fáar ær eru skýrslufærðar, fæðast tvö Iömb eða fleiri eftir ána sem er frábær árangur. Enn meiri ástæða er samt til að beina athyglinni að niður- stöðunum í Sf. Kirkjuhvamms- hrepps þar sem eru nær tvö þús- und ær skýrslufærðar. Að meðal- tali fæðast hjá þeim 1,98 lömb vorið 2002 og þær skila að hausti 1,84 lambi að jafnaði. Fjárbú- skapur á mörgum búum í þessu félagi er löngur landsþekktur fyr- ir mikla fagmennsku og ræktun og arðbærari sauðfjárbúskap en víðast annars staðar hér á landi. Eins og oft áður er niðurstaða í hinu stóra félagi í Sf. Kirkjubóls- hreppi athyglisverð þar sem 1,91 lömb fæðast að meðaltali og 1,76 lömb koma til nytja eftir ána að jafnaði. Mynd 3 sýnir hlutfall marg- lembna í einstökum sýslum vorið 2002. Að vonum speglast þessi mynd mjög vel við mynd 2 hvað varðar meðalfrjósemi eftir sýsl- um. Það er ljóst að aukinni frjó- semi hlýtur ætíð að fylgja hærra hlutfalla af marglembum. Mjög góð frjósemi næst tæpast án þess. I 10 félögum eryfir 10% ánna eða fleiri marglembdar og þau félög, þar sem þetta hlutfall er hæst, eru þau sömu og hér að framan eru nefnd í sambandi við mesta með- alfrjósemi. Miklar afurðir Síðustu ár hefur vænleiki dilka verið mikill og þannig var árið Hlutfall fleirlembna 2002 Mynd 3. Hlutfall af merglembum I fjárræktarfélögunum vorið 2002 flokkað eftir héruöum. Freyr 7/2003 - 17 |

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.