Freyr

Årgang

Freyr - 01.02.2004, Side 18

Freyr - 01.02.2004, Side 18
Regn á opið flag eöa ógróið land • Yfirborðið verður fyrir orku regndropanna • Bygging jarðvegsins hættir til að splundrast og rétt neöan yfirborðs getur jarðvegur þést • Á yfirborði myndast vatnsósa lag. Jarövegur skolast til og rennur til með yfirborðsvatni • Eftir rigningu myndast oft skán á flaginu sem tefur fyrir spirun og er veik fyrir frekara rofi Sterk bygging og hratt flæði i jarðveginn er besta vörnin gegn vatnsrofi 3. mynd. Áhrif regndropa á opið falg myndun vatnssósa yfirborðs (4). Varnir gegn þjöppun Þar sem reglur um góða búskap- arhætti eru ítarlegar eða lög og reglur um jarðvegsvemd og álag á jarðveg em í gildi er lögð áhersla á að umferð sé hagað þannig að ekki hljótist langvarandi skaði af og frjósemi landsins dali. Þessu má helst ná með því að: * Forðast óþarfa umferð með þungum tækjum * Nota tæki og tækni sem veldur ekki þjöppun jarðvegs og breytingum á byggingu hans * Taka tillit til þess að þurr jarð- vegur hefur mun meira burðar- þol en rakur eða blautur jarð- vegur og forðast því umferð um blautt land. Fyrirbyggjandi jarðvegsvernd stefnir að því að forðast þjöppun sem veikir byggingu jarðvegsins, Vatnsrásir i opnu flagi . Regnvatn nær ekki að síga niður • Jarðvegur oft þéttastur í hjólförum og sáðröðum og þar myndast smáseytlur • Jarðvegsrofið er nokkuð jafnt af landinu og er kallað lagrof • Þar sem mikill vatnsgangur er geta stórar vatnsrásir myndast Gróður, hálmureða annað, sem þekur eða lokar yfirborðinu, er besta vörnin gegn lagrofi 4. mynd. Vatnsrásir i flagi sem gengið hefur verið frá (4). minnkar rými stórra holna og þar með aðgang lofts að jarðveginum. Það á að draga úr hættu á að fijó- semi landsins minnki og að upp- skera rými vegna þjöppunar. Rof á ræktuðu landi A Islandi er túnrækt ríkjandi og á túnum er yfirleitt ekkert rof. Með aukinni akuryrkju er meira um opin flög og hætta á rofi eykst. Islenskur jarðvegur er að eðli til fokgjam og hætta á rofi því mikil ef rofvaldar ná sér á strik. Þetta er alkunna og merki um gífurlegt rof em vel þekkt og sýnileg um allt land. Rofgimi íslensks jarðvegs byggist á því að komastærðin er yfirleitt fínn sandur og méla, en leir, sem bindur agnir jarðvegsins saman í stöðugar stórar einingar, er af skomum skammti. Auk þess er Island vindasamt og hætta á vindrofí því mikil. Vatnsrof Vatnsrof verður vegna vatns sem rennur til á yfirborði. Regn- dropar losa um jarðveginn, efsta lagið veðst upp og skolast til (3. mynd). Þar sem vatn safnast fyrir getur það myndað seytlur sem bera jarðveg með sér. Stundum er tilfærslan einungis innan akursins en þar sem gruggugt vatn rennur af akrinum glatast jarðvegur af honum. Þetta rof er kallað lagrof (sheet erosion, 4. mynd). Ef það er lítið ber ekki mikið á því og er víða vanmetið. Langtímaáhrifin, eru stöðugt tap á frjósamasta lagi jarðvegsins, ásamt næringarefn- um og lífrænum efnum sem þá þarf stöðugt að endumýja. Með tímanum getur mun ófrjósamara eða grýtt undirlag komið upp en þá hefur frjósemi landsins beðið varanlegan skaða. I gömlum ræktunarlöndum eru ótal dæmi til um að efst í brekkum sé jarðveg- ur þunnur og grýttur en mun þykkari i brekkurótum. Víða má 114 - Freyr 1/2004

x

Freyr

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.