Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.02.2004, Qupperneq 20

Freyr - 01.02.2004, Qupperneq 20
Land Jardvegsdýpt m Hámarks tap þurrefnis tonn/ha Ástralía > 1,5 10 1 - 1,5 5 < 1,0 1 Sviss >0,7 4 <0,7 2 1. tafla. Viðmiðurnarstæröir fyrir hámarksrof af akurlendi í Astralíu 3) og í Sviss (5). Tonn/ha á ári að meðaltali. er meðal árlegt rof af völdum vatns af stærðargráðunni 10 tonn/ha en meðalrof allt að um 100 tonn/ha er einnig þekkt. Stór hluti þessa rofs er tilfærsla innan akursins eða vatnasviðs þannig að efst í brekkum verður jarðvegur þunnur en þykknar í brekkurótun- um eða verður eftir sem set í lægðum, skurðum, tjömum og vötnum. Langtímatjón er verulegt þar sem frjósemi jarðvegs efst í brekkum minnkar en eykst að jafnaði ekki að sama skapi með stöðugt þykkari jarðvegi þar sem lægra ber. Tjón getur einnig verið þar sem tjamir eða vötn fyllast af seti og mikið af næringarefnum berst í vatnakerfið. Það er algengt markmið að lág- marka rof af ökrum eins og frek- ast er unnt án þess að einhverjar tölur séu gefnar upp. Það er einn- ig til að stefnt skuli að því að rof sé ekki meira en sem nemur ný- myndun jarðvegs og halda þannig jafnvægi. Nýmyndun jarðvegs er hins vegar mjög hæg. I Evrópu er áætlað að árleg nýmyndun sé 0,1 - 1,0 tonn/ha á lausu undirlagi en einungis 0,01 - 0,1 tonn/ha þar sem undirlagið er þétt (9). I Astr- alíu er unnið með stærðunum 0,02 - 0,4 tonn sem árlegri nýmyndun með veðmn á bergi (3). Þegar sett em mörk um árlegt hámarksrof, sem unað verður við, er það aðallega á bilinu 1-15 tonn/ha (9). Fer það eftir aðstæð- um, sérstaklega dýpt jarðvegsins, hvaða hámark er sett. Dæmi um mörk um hámarksrof, sem unnið er eftir, má t.d. taka frá þeim ólíku löndum Sviss (5) og Astralíu (3). I Astralíu er tekið tillit til mun þykkri jarðvegs (1. tafla) en í Sviss og kemur þar til munur á náttúm þessara landa. Þegar litið er til jarðvegs, sem er innan við 1 m að þykkt, þá em viðmiðunarmörkin strangari í Astralíu, en í raun er stærðargráðan svipuð. Hámarks- tapið, 10 tonn/ha, samavarar um 1 mm jarðvegs í þessum löndum. Þegar litið er til Islands þarf að taka tillit til þess að jarðvegur hér er mun léttari í sér. Ætla má að á akurlendi á mýrarjörð séu um 200 - 300 tonn þurrefnis á ha í efstu 10 cm mýrarjarðvegs, 400 - 600 tonn/ha í móajarðvegi og um 1000 tonn/ha í sandjarðvegi. Ef árlegt hámarks meðaltap upp á 5 tonn/ha yrði viðmiðun á djúpum jarðvegi þá mundu 10 cm lag tapast á 40 - 60 ámm á mýrarjörð, á 100 — 120 árum á móajörð og á 200 ámm á sandjörð. Þetta gefur hugmynd um stærðargráður, bæði þykkt og tíma. Á búskapartíma hvers bónda er þetta ekki mikið en sé litið til nokkurra alda er ljóst að huga þarf að tapi á jarðvegi af ökrum hér ekki síður en annars staðar. Lokaorð Það má heita merkilegt að rann- sóknir þeirra Magnúsar og Ottars hafi ekki vakið meiri athygli þar sem niðurstöður þeirra benda til ótrúlega mikils uppskemtaps vegna þjöppunar. Það kann að vera að tilraunin hafi verið gerð á viðkvæmu mýrlendi og ekki hægt að yfirfæra niðurstöður á þurrara land. Þetta hefúr samt ekki leitt til viðbragða og viðleitni til að draga úr umferð eða vinna með léttari tækjum. Þvert á móti hafa tæki þyngst til muna án þess að athug- að hafí verið hvaða áhrif hin þungu tæki hafa. Smávægilegt rof af ökmm sést ekki í fljótu bragði. Árlegt tap upp á 1 - 2 mm er það lítið að ekki sést á flaginu og það er einnig erfitt að koma við mælinum á svona litlu tapi. Þetta em samt þær stærðar- gráður sem nágrannþjóðir okkar vilja ekki að náist, þar er stefht að tapi sem er innan við 1 mm. Aukist akuryrkja, eins og allt virðist benda til og er rnjög jákvætt, þá er þetta atriði sem hafa þarf í huga ffá upp- hafi. Slys, þar sem mikið fýkur úr flögum eða vatnsrof er vemlegt, má ekki gerast og ef það gerist, gerist það ekki nema einu sinni. Við höf- um ekki efni á að glata okkar bestu ræktunarmold með rofi. Heimildir 1. Árni Snæbjörnsson, 1987. Framræsla. Búnaðarfélag Is- lands. Fræðslurit nr. 8: 35 bls. 2. Ámi Snæbjömsson, 1992. Um þjöppun jarðvegs. Rit Búvís- indadeildar 1: 93-101 3. Department of Land and Water Conservation 2000. Soil and Landscape Issues in Environ- mental Impact Assessment. Technical Report No 34, 2nd edition, NSW Department of Land and Water Conservation. 4. Frielingshaus, Monika 2001. Erosionsformen. í Blume H.-R og fleiri (útg.) Handbuch der Framhald á bls. 26 116 - Freyr 1/2004

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.